Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Síða 62

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Síða 62
Tímarit Máls og mennirtgar saumakonunni, til að taka út kynþroskann. Títuprjónarnir sem hún fær eru andstæða saumnálanna, sem tengjast vinnunni og eru notaðar til að gera við rifin föt, en þó sérstaklega þeirra með stóru augun (slitnu eða mikið notuðu?), sem heyra til gömlum konum og ömmum sem eru farnar að sjá illa. Þar höfum við upplýsingar um hvar í þróuninni amman er stödd því ef hægt er að skilja táknmál títuprjónanna og saumnálanna á þann hátt sem lagt var til hér að framan, þá má líka ráða í merkingu sjónarinnar í sama umhverfi. Að „sjá“ merkir nefnilega að hafa blæðingar — að sjá ekki lengur táknar að þær eru úr sögunni. Þetta þýðir að aðalpersónur sögunnar eru ung stúlka sem er að komast á giftingaraldurinn og gömul kona sem komin er úr barneign, dótturdóttir og amma. Athugun á breytilegum nöfnum veganna í hinum mismunandi gerð- um leiðir til sömu niðurstöðu: smásteinar, þyrnarnir og runnarnir sem rífa og stinga tilheyra sama blóðuga táknmáli og títuprjónarnir. I Provence buðu strákarnir draumadísum sínum steina eða öllu heldur köstuðu þeim til þeirra en títuprjónabréf þjónuðu sama tilgangi sums- staðar annars staðar. Þó að leiðin sé ekki alltaf alsett mjóum og hvössum hlutum er hún ævinlega merkt á einhvern hátt: litla stúlkan tínir ber eða blóm eins og hjá Grimmsbræðrum, en hvort tveggja er tákn kynþrosk- ans (sbr. „vera í fullum blóma“). Og þessi blóm eða ber segist hún ætla með til ömmu sinnar eins og það sé fyrir mestu að hún fái að vita af þeim, þ. e. kynþroskanum. Er þá nokkuð því til fyrirstöðu að líta á minnið um rauðu húfuna hjá Perrault sem sams konar tákn og títu- prjónana? Þetta tvennt sem hvort tveggja er tengt klæðaburði stúlkunnar er þá sömu merkingar og útilokar hvort annað. Ef svo er hefur Saintyves verið á réttri leið þegar hann leit á rauðu hettuna sem hliðstæðu við rósakransinn sem stúlkurnar bera í maí. Rauðhetta er þá stúlka helguð maímánuði, þ. e. komin á giftingaraldurinn, því maí er tákn um kynþroska og frjósemi. Styrkjandi máltíð Þegar litla stúlkan kemur til ömmu sinnar býður úlfurinn henni upp á hressingu, eða hún segist sjálf vera svöng, síðan þyrst (og loks syfjuð). Hann segir henni þá að ná í kjöt úr skápnum og hella víni í glas handa sér. Allt er þetta ósköp heimilislegt og innilegt, úlfurinn liggur í rúmi sínu og horfir á hana meðan hún stússar við húsverkin, tekur til efnið í 292
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.