Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Síða 67

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Síða 67
Rauðhetta í munnlegri geymd til af því sama: hvað rekkjunautur hennar er loðinn, a. m. k. er það ævinlega það fyrsta sem hún spyr um. „O, mamma, hvað þú ert snörp!“ Eða: „O, hvað þú ert loðin, amma mín!“ Eða: „En hvað þú hefur mikið skegg!“ Eða: „O, mamma, hvað þú hefur mikið hár!“ Eða: „Hamingjan góða, amma mín, hvað það eru loðnir á þér fæturnir!“ Og úlfurinn svarar einlægt því sama: „Það er aldurinn, barnið mitt, það er aldurinn." En eins og við munum hefur úlfurinn dulbúist til að koma í stað ömmunnar, sett á sig nátthúfuna hennar og jafnvel gleraugun. Því þá ekki að taka hann á orðinu og skoða hann eins og þá sem hann þykist vera, það er að segja ömmuna, a. m. k. leikur hann það hlutverk gagnvart stúlkunni. Þá höfum við hér fúlskeggjaða ömmu, þ. e. hafandi vissa karlmannlega eiginleika sem eiga að vera aldrinum að kenna. Eftirfarandi samræður í einni af hinum ítölsku gerðum sögunnar geta kannski varpað ljósi á ástæður þessarar breytingar: Litla stúlkan skreið upp í rúmið. Þegar hún kom við hönd ömmu sinnar sagði hún: „Af hverju hefurðu svona loðnar hendur, amma mín?“ — „Það er af öllu því sem maðurinn minn hefur látið mig bera.“ Svo þreifaði hún á handleggjunum: „Af hverju eru þeir svona mikið Ioðnir?“ — „Það er af því að ég hef unnið svo mikið.“ Þá tók hún á bringunni á henni: „Hvaðan kemur allt þetta hár?“ — „Eg hef mjólkað of mörgum börnurn." — „Og af hverju ertu svona loðin á maganum?" — „Það er af því að ég hef átt of marga krakka.“ Oll þessi loðna er hér greinilega tengd því að konan er útslitin af barneignum. Ef orð úlfsins eru tekin bókstaflega lýsa þau gamalli konu sem um leið og hún glatar hæfileikanum til að fæða börn og þar með kvenleika sínum — tíðablæðingum, brjóstum, móðurlífinu — verður alþakin hári eins og karlmaður eða villidýr. Er það kannski svo að hér sé fremur um að ræða ömmu sem breytist í úlf en úlf sem breytir sér í ömmu? Ef svo er, ef amman og dýrið eru eitt og hið sama, ef úlfurinn er bara ein hliðin á ömmunni þá eru þátttakendur leiksins aðeins tveir, eins og við raunar höfum á tilfinningunni í upphafi þessarar greinar: litla stúlkan sem er að verða kona og amman sem hefur glatað kvenleika sínum og er orðin karlmannleg eða dýrsleg. Sannleikurinn er sá að slík saga er til, þar sem ung, foreldralaus stúlka kemur í heimsókn til ömmu 297 L
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.