Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Qupperneq 71

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Qupperneq 71
Rauðhetta í munnlegri geymd sem einmitt er byggð á hvarfi umræddrar smjörkrukku. Hann lítur á söguna sem „ambrósíuævintýri". Litla stúlkan sem er svo kjarkmikil minnir hann á gyðjuna Nantosuseltu sem í gallverskri höggmyndalist hefur með sér fórnarskál og nægtahorn; úlfurinn er hliðstæða Sucellusar sem er gallverskur guð með hamar í annarri hendi en litla krukku í hinni og alltaf sýndur skeggjaður og loðinn með úlfsfeld á herðunum. Litla smjörkrukkan er tákn ambrósíunnar, hinnar dularfullu ódáinsfæðu sem kemur úr öldum hafsins og það er einmitt hún sem Sucellus heldur á. Samkvæmt þessu fælist „ambrósíuævintýrið“ í því að úlfurinn reynir að stela smjörkrukkunni frá stúlkunni — fyrst án árangurs, þegar þau hittast á krossgötunum en tekst það í næsta sinn með því að þykjast vera amma hennar. Það er nefnilega á þann hátt, með því að dulbúast sem kona, sem hinn indóevrópski guð nær ódáinsfæðunni á sitt vald. Rauðhettu-sagan væri þá síðasta bergmálið af gallversku afbrigði sagnanna um ambrósíuna. Þessi kenning Dumézils tengist hugmyndum Saintyves að því leyti að sá síðarnefndi telur smjörkrukkuna líka mjög mikilvæga; þó smjör strokkað í maímánuði geri engan ódauðlegan hefur það yfir- náttúrulega eiginleika eins og aðrar mjólkurafurðir á þeim árstíma. I okkar gerðum sögunnar segir ekkert um það hvað verður um matinn sem sú litla hefur með sér nema í einni frá Forez. Þar hittir hún úlfinn sem lætur í veðri vaka að karfan sé henni til óþæginda og tekur hana af henni. Þegar til ömmunnar kemur segir hún: Eg er með títuprjóna með mér (þá hefur hún tínt á leiðinni). Ég var með ost og smjör en svo hitti ég úlfinn og hann tók það frá mér. Ég var hrædd um að hann æti það allt svo ég lét hann hafa það. — Það var alveg rétt af þér, svarar úlfurinn-amma. Þetta er eina gerðin sem styður þjófnaðarkenn- ingu Dumézils en hún leggur áherslu á eitt mikilvægt atriði: maturinn sem amman átti að fá komst aldrei til skila. Hvort sem úlfurinn stelur honum eða hann dettur úr sögunni vegna gleymsku fær amman ekkert í svanginn. Það þýðir að litla stúlkan er ekki lengur í hlutverki barnsins, þess sem fer á milli með matinn. Hún snýr öllu kerfinu við og tekur í senn sæti móður sinnar og ömmu, þeirrar sem eldar matinn og þeirrar sem borðar hann, og ryður þeim burt um leið. Og allt sem hún hefur að bjóða ömmu sinni eru nokkrir títuprjónar sem hún hefur hirt á leiðinni. 301
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.