Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 15
Gegn straumi aldar lesinn á sama hátt og heimspekileg, trúarleg eða pólitísk stefnuboðun nema með óskaplegum einföldunum. Hann er margbreytilegur og mótsagnafull- ur eins og lífið sjálft. Einmitt þess vegna er hann e.t.v. betri heimild um mannlíf hverrar tíðar en hagtölur, heimspekikenningar og pólitískar stefnu- skrár. Engu að síður: Er líklegt að athugun á hugmyndum og höfundarverki Gunnars Gunnarssonar, sem hrærðist í menningarheimi annarrar þjóðar og samdi skáldverk sín ekki síður með lesendur annarra þjóða í huga, geti gef- ið einhverja ávísun á svör við spurningunni um menningarbyltingu á Is- landi? Þegar Gunnar Gunnarsson hafði unnið sér frama, fé og frægð sem rit- höfundur í Danmörku og allri Vestur-Evrópu og hvarf heim til Islands 1939 gripu danskir gagnrýnendur og bókmenntamenn stundum til há- stemdra líkinga um feril hans. Hann var karlssonurinn úr ævintýrinu, Hans klaufi, sem kom og vann prinsessuna og konungsríkið. Einn þeirra sagði nokkurn veginn á þessa leið: - Fyrst sveltur maður, þjáist maður, en svo - svo verður maður fræg- ur. Og vissulega minnti Gunnar Gunnarsson ekki á annan meir vorið 1939 en þann karlsson úr koti, sem unnið hafði heilt konungsríki, eða þá kolbíta íslenska sem hófust úr ösku, frömdu dáðir á erlendri grund og sneru knerri heim hlaðnir fé og frama. En saga Gunnars var þá ekki öll. Hann lifði langa ævi eftir heimkomu sína. Til er líka saga af öðru konungsríki - saga Lés konungs sem að ævilokum stóð yfir tvístruðu og hrundu ríki sínu. Stóð Gunnar Gunnarsson síðar yfir hrundu ríki hugmynda sinna en gat þrátt fyrir það tekið undir með Lé konungi á dauðastundinni: [...] við lifum og biðjum, syngjum, segjum frá, og hlæjum að gullfiðrildum, heyrum húsgangs-ræfla tjá hirðfréttir, við spjöllum líka við þá, um náð og ónáð, hverjir rísa og hrapa, og bregðum upp svo dular-drjúgum svip sem Drottins njósnarar [...]? Hans klaufi - Lér konungur. Felst svarið við spurningunni um menning- arbyltingu á Islandi e.t.v. í því á hvorn veginn við túlkum líf og hugmynda- heim Gunnars Gunnarssonar? 405
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.