Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 27

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 27
Gegn straumi aldar Gesellschaft í pílagrímsför þess með Milwaukee - urðu öðru fremur til vinslita með honum og ýmsum af vinstri væng meðal danskra rithöfunda og menntamanna. Hér urðu veðraskil og nú hófust beinar og dulbúnar árásir á hann í dönskum blöðum og tímaritum fyrir meintan nasisma eða a.m.k. hliðhylli við stefnu þeirra. Ein fyrsta og meinfýsnasta atlagan var gerð í hinu glæsilega menningar- tímariti Kulturkampen sem ýmsir ungir og vinstri-róttækir menntamenn stóðu að. I septemberhefti þess 1936 birti gamall vinur Gunnars, Otto Gel- sted, er samið hafði bók um hann og höfundarverk hans, „Aabent Brev til Gunnar Gunnarsson“. Þar krafðist hann svara við því hversu sterk tengsl við menningarstefnu nasista doktorstitillinn þýddi og hvort Gunnar tryði ekki lengur á frelsi sem forsendu vísindaiðkana og listsköpunar, en teldi þær eiga að vera flokksstýrðar eins og væri stefna nasista. I sama hefti af Kulturkampen birtist svo meinleg skopteikning af Gunn- ari þar sem sagt var beinum orðum í meðfylgjandi texta að hann hefði eftir doktorsútnefningu í Heidelberg ferðast til Islands á þýsku herskipi. Gunnar brást að vonum hart við þessari árás og í desemberheftinu af Kulturkampen birtist svar hans við opnu bréfi Gelsteds. Sagði hann stutt og laggott að hann hefði ávallt gengið sínar eigin götur og allt höfundarverk sitt ætti að vera Otto Gelsted nægilegt svar um það að hann tryði á frjálsa iðkun vísinda og lista. Síðan lét hann höggin ríða vegna myndbirtingarinnar og skoraði á tíma- ritið að nefna dæmi um ferðalög sín með þýskum herskipum, en um borð í slík farartæki hefði hann aldrei stigið fæti. Þótti honum sem aðstandendur ritsins hnikuðu grundvelli sannleikans, en byggðu á slúðri og hefðu lítil efni á tali um óhlutdrægni. Bæði Otto Gelsted og Peter Freuchen, sem borið höfðu ábyrgð á myndbirtingunni, báðu Gunnar afsökunar á henni í þessu hefti, en hömr- uðu á því að Gunnar hefði vakið sorg og hneykslun gamalla aðdáenda sinna með því að taka við heiðursnafnbótinni í Heidelberg. En atburðir þessa örlagaárs í pólitískri sögu Gunnars eru ekki allir taldir. Um haustið þá hann boð á flokksþing nasista sem haldið var í Núrnberg 8.-14. september og nefndist Der Parteitag der Ehre. Þýsk nákvæmni er söm við sig. í skjalasafni stofnunarinnar fyrir samtíma sögu í Múnchen er skrá nasistaflokksins um það hvar gestum var fundinn samastaður. Sakir fjölda þeirra skorti hótelrými og var mörgum fengin gist- ing í svefnvögnum járnbrautarlesta. Þar getur að líta vagnnúmer skáldsins. A heimleiðinni kom hann við í Berlín og hafði þá viðtal við blaðið Ber- liner Lokal-Anzeiger 17. sept., þar sem hann lét í ljós mikla hrifni og bar 417
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.