Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 37
Hvað er póstmódernismi? lega fagurfræði sjöunda áratugarins en hinsvegar borið merkingu í samræmi við sögusvið bókarinnar. Sagan gerist einmitt á póst-módernum tímum í þeim skilningi að hinn vestræni nútími er liðinn undir lok. Kapítalíska hagkerfið er hrunið og ýmiskonar hörmungar hafa dunið yfir jörðina: raunverulegar fram- farir hafa einungis átt sér stað á einu sviði; geimferðum, en hnötturinn sjálfur er með heimsendabrag. Er ekki einmitt rökrétt að nota hugtakið póstmódern- ismi um list sem birtir slíkt hrun heimsmyndar okkar, í raun endalok vest- rænnar menningar og þess nútímalífs sem enn einkennist af örri tækniþróun og útþenslu hagkerfa? En hugtakið er ekki bundið ákveðnu viðfangsefni og hefur ekki verið notað til slíkrar þematískrar flokkunar. Hinsvegar hefur verið bryddað uppá hugtak- mu „post-apocalyptic“ um verk sem fjalla um jarðneskt líf eftir heimsslitaátök, einsog sumar skáldsögur Doris Lessing, t.d. Memoirs of a Survivor, sem út hef- ur komið á íslensku (Minningar einnar sem eftir lifði). Og einsog flest önnur póst-hugtök sem höfð hafa verið í frammi upp á síðkastið (á ensku má rekast á hugtök einsog „post-marxixm“, „post-feminism“, „post-industrial“ og jafnvel „post-historical“, þ.e. „póstsögulegur"), þá ber „postmodernismi" með sér (ó) vissa heimsendingastemmningu. í>að er einsog öllu sé að ljúka og jafnframt kemst skilningur okkar í þrot og við erum ekki fær um annað en að hnýta „póstinum" framan við það sem var, eða það sem er að fjara út. Ég mun víkja aftur að þessu í lokin, svo sem hæfir. Hvab meb módernismann? Hingað til hef ég einblínt á forskeytið og bælt það hugtak sem myndar megin- hluta „póstmódernismans", sjálft föðurnafnið. Ringulreiðin í kringum póstmódernismann hlýst ekki síst af því að umræðan um hann er oft tilraun til að losna við annað fyrirbæri sem að margra mati er langt frá því að vera „kom- ið á hreint". Póstmódernismanum er samkvæmt orðsins hljóðan oft ætlað að boða endalok módernisma sem stefnu í bókmenntum og listum og vísa á það sem kemur á eftir módernismanum. Það er aldagömul hefð fyrir því að tala um nútímafólk sem dverga er sitja á herðum risa. I þessu felst ákveðið lítillæti, því við erum smáar verur og kom- umst einungis svona hátt vegna stærðar risans (fortíðarinnar), en hins vegar einnig sjálfsánægja, því við njótum betra útsýnis en sá sem ber okkur; við sjá- um jafnvel í annan heim. En sú söguspeki, sem býr í þessari mynd af sjálfstæð- um verum trónandi efst á sístækkandi burðarmanni, komst í þrot á okkar öld. Og póstmódernisminn sættir sig við að vera áfastur því sem hann afneitar. Munurinn felst í litlu /orskeyti sem vísar þó á a/í«rhluta, kannski þann hluta sem skilar úrgangi sjálfrar skepnunnar og getur náttúrlega ekki án hennar ver- ið. Til þess að átta okkur á afturhluta þessarar skepnu sem ferðast svona öfug tnn í framtíðina verðum við að þekkja skrímslið sjálft. Við getum ekki notað hugtakið póstmódernismi nema benda merkingarfingri á módernisma. Þetta 427
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.