Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Side 83

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Side 83
Rödd ástrídunnar ætlum að setja lög um pyntingar. Við getum ekki sett ákvæði í lög um að sýslumönnum sé bannað að pynta með meira en hundrað volta straum. Lögin geta ekki skipt sér af svoleiðis löguðu. Látum þá pynta eins og þá lystir.“ Viðtalinu var ekki sjónvarpað, sjónvarpsþátturinn minn var bannaður og ég hætti störfum sem sjónvarpsfréttamaður. En ég ætlaði ekki að tala um stöðu kvenna almennt heldur þeirra sem skrifa. Ég bjó í Caracas í mörg ár og var þar í hópi kvenrithöfunda sem hittist reglulega. Við hittumst til skiptis heima hjá hver annarri, gestgjafinn býður upp á einfaldan hádegisverð og svo tölum við saman um þetta einkennilega starf, að skrifa, sem verður svo miklu einkennilegra þegar kona gerir það. Við ræðum þetta venjulega: handrit sem útgefendur hafna, jafnvel án þess að nenna að lesa þau, bækur sem eru nánast gefnar út á laun af því að gagn- rýnendur þegja yfir þeim, hvað við erum einangraðar af því að boðskortin á ráðstefnurnar eru send starfsbræðrum okkar nema á einstaka ráðstefnu um kvennabókmenntir, hvað við höfum fáar frístundir til að skrifa af því við verðum að vinna fyrir okkur og sjá líka um heimili, mann og börn. Fá- ar konur þora að segja fjölskyldunni að því miður sé enginn matur í kvöld af því að dagurinn hafi farið í að skrifa sögu. Nærri því hver einasta verður fyrr eða síðar að velja á milli ritstarfanna og hjónabandsins. Við tölum líka um það sem kemur upp á í sjálfu starfinu. Einu sinni töl- uðum við lengi um hvernig við gætum fjallað um ást og kynlíf í bókum. Þetta er einfalt fyrir karlmenn - spyrjiði bara Norman Mailer eða Bu- kowski - en kemur suður-amerískri konu í vonda klípu. Okkur flökrar orðið við útjöskuðu myndmáli en hvernig getum við skrifað um kynlíf án þess að mennirnir okkar haldi að við séum að skrifa um eigin reynslu? Hvernig getum við horfst í augu við aldraðar föðursystur okkar yfir sunnudagssteikinni ef við erum nýbúnar að gefa út sögu um lesbíur, ná- kvæmar lýsingar á ástalífi ógifts fólks eða létt klám? Ein kunnkona mín leysti vandann með því að sérhæfa sig í indíánum, siðum þeirra og þjóð- sögum. Varla dettur frænkum hennar og eiginmanni í hug að hún haldi við píraóskan frumbyggja eða mann af Yanomami ættbálkinum. Önnur bindur erótíska óra sína í ljóð af því hún komst að því að færri styggjast við það, kannski af því að það les enginn ljóð. Kynlíf er ekki það eina sem kvenfólki veitist erfitt að skrifa um. Stjórn- mál, saga og félagsfræðileg efni eru líka erfið, ekki vegna þess að við höfum ekki áhuga á þeim eða finnst við ekki geta skrifað um þau af viti heldur vegna þess að við erum ekki teknar alvarlega þegar við fjöllum um þau. Fordómarnir segja að skáldskapur kvenna sé tilfinningaríkur og náinn, TMM VI 473
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.