Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 88
Tímarit Mdls og menningar
Eg var gersamlega á valdi þessa lífs sem ég hafði skapað úr orðum, um-
breytt í veruleika, enduralið inn í eilífðina, sá spegilmynd mína í margfaldri
skuggsjá, lifði ótal lífum, talaði ótal tungum.
Eva Luna er eins og margar suður-amerískar konur. Fleiri og fleiri eru
þær að rjúfa þögnina, menntaðar, hæfar konur, reiðubúnar að slást án þess
þó að fórna kvenleika sínum. F>ær orða sýn sína á heiminn með eigin
tungutaki, án hátíðleika, hugmyndaríkar, hæðnar og skáldlegar. Þær skrifa
um kynlíf, drauma og innstu leyndardóma, hvernig við elskum og hötum.
Þær reyna að skoða mörg andlit ofbeldisins í feðraveldinu og karlveldinu
sem þær hlutu að fæðast í. Ommur okkar sem langaði til að skrifa voru
álitnar óeðlilegar. Mín kynslóð uppsker ávexti erfiðis þeirra. Við þurfum
ekki lengur að þegja yfir hlutskipti kvenna, skrifa eins og karlmenn eða fela
okkur á bak við karlmannsnafn. Og ég trúi því statt og stöðugt að dætur
okkar og dætradætur geti notað egg orðanna til að skapa betri - eða að
minnsta kosti skemmtilegri heim.
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi úr enskri gerð höfundar
478