Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Side 129

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Side 129
ELDS ER ÞÖRF I Skömmu fyrir síðustu jól fékk ég í hendur merka bók um íslenska atvinnu- sögu. Bókin sem um ræðir er fyrsta bindið í Safni til Iðnsögu Islendinga, Eldur í afli - málmiðnaður á Islandi á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar. Höf- undur bókarinnar er Sumarliði R. Is- leifsson sagnfræðingur. Eins og ráða má af bókartitli fjallar bókin um eina af helstu iðngreinum Is- lendinga, járnsmíði. Meginefni ritsins er saga málmiðnaðar á Islandi á ofan- greindu tímabili. Sem kunnugt er hefur iðnsögu lítt verið sinnt á Islandi fram að þessu. Rit- aðar heimildir um atvinnuhætti og verkmenningu hafa verið einstaklega fá- skrúðugar. I því ljósi er bók Sumarliða all sérstök. Viðfangsefni bókarinnar er helsti kostur hennar að mínu mati, - með ritun bókarinnar leggur Sumarliði stein í vörðu íslenskrar iðnsögu. Verkið skiptist í sex þætti, auk að- faraorða fyrrverandi menntamálaráð- herra, greinargerðar um Safn til Iðn- sögu Islendinga eftir Jón Böðvarsson og bókarauka um orðtök runnin frá málmsmíði í samantekt Halldórs Hall- dórssonar. Ritið hefst á inngangi þar sem upp- bygging bókarinnar er skýrð og gerð er grein fyrir markmiði söguritunarinnar. Sumarliði segir að markmiðið sé „fyrst og fremst að svara því hvers vegna málmiðnaður hefur vaxið eins og raun ber vitni og gefa heildaryfirlit yfir þá framvindu" (bls. 14). I öðrum kafla er málmiðnaður skilgreindur og gerð grein fyrir þeim starfshópum sem tilheyrðu þessari grein á 19. öld og fyrri helmingi Umsagnir um bœkur þeirrar 20. Fjallað er stuttlega um rétt- indi iðnaðarmanna á þessum tíma, iðn- nám og skiptingu málmiðnaðarmanna eftir stéttarstöðu. I þriðja kafla greinir höfundur frá stöðu iðnaðarins meðan allur þorri landsmanna hafði viðurværi sitt af land- búnaði. Hann getur um hvernig vöxtur bæja var forsenda iðnaðar. Einnig hvernig handiðnaður í landinu breytist smám saman frá því að vera heimilisiðn- aður til sveita í að vera handverk í þorp- um og bæjum. I fjórða kafla ræðir Sumarliði hvernig handverkið víkur fyrir vélarafli. Þar skýrir hann m.a. frá upphafi vélarnotk- unar, verksmiðjurekstri og útgerð út- lendinga og áhrifum á tækniþróun í landinu. Einnig er rætt um stofnun fyrstu vélsmiðjanna og þá erfiðleika sem urðu í vegi þegar fyrstu skref voru tekin í átt til tæknivædds þjóðfélags. I fimmta kafla er skýrt frá gangi mála árin 1920-50. Þar er sagt frá fyrstu stóru vélaverkstæðunum sem stofnuð voru um 1920 og helstu verkefnum þeirra, einkum skipaviðgerðum og vinnu við frystihús og síldarverksmiðjur. Breyt- ingar á verkfærum og vinnubrögðum koma einnig við sögu. Af mörgu öðru má nefna að fjallað er um kjör og að- búnað málmiðnaðarmanna. Bókinni lýkur svo á lokaorðum höf- undar. Frágangur bókarinnar er allur hinn smekklegasti og bókina prýðir mikill fjöldi mynda sem tengjast iðninni með einum eða öðrum hætti. Að auki er víða að finna rammagreinar með merkum fróðleik sem að efninu snýr. I Eldi í afli eru birt ljóð sem fjalla um iðnina og skýn frá orðtökum sprottn- um úr greininni. Það kunni ég vel að meta. A þann hátt eru hinar verklegu og 519
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.