Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 52
munninum. Gætilega bjóst hann til að reka höndina niður í skálina aftur.
Úr fjarska heyrðist þrýstiloftshvæs frá gestinum á glugganum, eins og
stuna.
— Ég át þær.
Hann sneri sér hægt við. Hún kom fram undan hliðinni á ísskápnum
og stóð nú hjá íhvolfa brauðkassanum úr blikkinu og hélt á smáköku,
sem hún var búin að bíta í. Andlitið var undarlega hvítt og greinilegt í
dimmunni og dálítill gljái á hökunni vitnaði um að hún hafði sagt satt —
þetta með sveskjumar.
— Ert það þú, sagði hann um síðir og bar höndina upp að munninum
meðan hann kyngdi sveskjunum.
— Já, það er ég. Ég var svöng.
Hann fann til léttis, sem svo hvarf fyrr en varði fyrir skrýtinni ánægju
yfir að sjá hana og loks undmn yfir að hún skyldi vera hér komin. Hingað,
næstum komin nótt — og í kolamyrkri!
— En það eru orðnar margar vikur .. . byrjaði hann.
Hún brosti og svaraði ekki, því hún hafði stungið upp í sig því sem
eftir var af kökunni. — Ertu nokkuð reiður, þótt ég stæli sveskjunum?
sagði hún.
— Nei, nei! Hann lést hlæja og hún lést líka hlæja og henni svelgdist
á kökunni svo hún hóstaði og hóstaði. Það var eins og allt væri orðið svo
skemmtilegt allt í einu. — Ég held bara að ég sé orðin klikk, sagði hún.
— Veistu það? Þú getur ekki trúað því. Alvörusvipur leið snöggt yfir
andlitið eins og þegar grárri mús bregður fyrir milli stráa og svo var það
ekki meira og hún var aftur byrjuð að þykjast hlæja.
— Viltu — viltu ekki koma inn, sagði hann og þau gengu inn í stofuna
og settust, hann í litla sófann, hún í stólinn þar sem hann hafði sjálfur
setið fyrir stundu. — Passaðu þig. Það datt glas með sveskjum, aðvaraði
hann hana.
— Em þá allar sveskjumar búnar? sagði hún og gerði sér upp svo
óttablandna alvöru að þau fóm bæði aftur að hlæja og nú næstum í alvöru.
Já, mikið var allt orðið skemmtilegt og eiginlega vissi hann ekki af
hverju. Þau sátu í myrkrinu og hvemig sem á því stóð var dimmara hér
en í eldhúsinu. — Verkamennimir við nýju álmuna slitu rafstreng, skýrði
hann út án þess að hún spyrði. — Allt heimilið er rafmagnslaust.
50
TMM 1992:2