Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Side 58

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Side 58
í borginni Flórens, fannst honum að lífið mundi eiga heima. Hér gerðist ekki neitt. Lífið vissi ekki af honum og hann fann að það mundi aldrei vita af honum. Kannske var það meðfram af löngun til að gera hana svolítið dapra líka að hann sagði: — Veistu að Hanna er dáin. Hún dó síðustu nótt? — Ertu að segja satt? Ég hafði ekki hugmynd um það. Hún greip andann á lofti. — Aumingja Hanna. En kannske er gott að hún er dáin. Ég held að hún hafi þjáðst. — Hún spurði oft eftir þér þegar þú varst farin. — Já, hún var líka besti vinur minn héma — fyrir utan þig auðvitað. Hún stóð eins og klettur með mér þegar þau sögðu að ég hefði stolið þessum svefnpillum, sagðist hafa tekið þær inn sjálf. Ég veit auðvitað ekkert um það en ekki stal ég þeim. Það var bara þessi hjúkrunarkonu- tmnta héma sem þurfti að finna eitthvað til að klína á mig svo ég yrði rekin. Ætli hún hafi ekki sjálf étið þær. Ég yrði sko ekki hissa. En nú skil ég af hverju þú ert svona niðurdreginn. Svona slær mann nú alveg út af laginu. Þú ert líka eitthvað svo gugginn. Hugsa nýju stelpumar héma ekkert um þig? Hún sendi honum stríðnislegt augnaráð og dró fram gula tuðru, sem hann hafði ekki tekið eftir fyrr en nú. — Ég ætla að laga þig svolítið til. — Nei, ekki. . . byrjaði hann en hún ansaði honum ekki. Hún spratt upp og dró stólinn að speglinum. Eins og hún hefði fyllst nýjum þrótti greip hún um handlegginn á honum og dró hann á fætur. — Svona, sestu, sagði hún, eins og hún væri að áminna þrjóskan krakka. Hann settist og fylgdist með þegar hún byrjaði að tína mislit glös og kmkkur upp úr tuðrunni, skæri, augnháraplokkara, handspegil, naglaþjalir, fimm greiður (þrjár af þeim risastórar) og loks lítinn hárblásara. Það var ótrúlegt að þetta hefði allt komist fyrir í tuðrunni, minnti á pípuhatt hjá sjónhverf- ingamanni. Litla borðið var alþakið eins og sýningaborð í snyrtivömbúð. — Ég hreinsaði aðeins til hjá þeim í París, áður en ég strauk, sagði hún glettnislega, um leið og hún greip eina af greiðunum sem búin var hárbeittum prjóni og tók að greiða honum. — Þú hefur svo fallegt ljóst hár, hvíslaði hún. Hann þagði og starði í ljósið í speglinum. Engillinn, næstum höfuðlaus, spennti greipar í miðri kösinni, eins og hann kysi að heyra hvorki né sjá þennan óguðlega ránsfeng. — Það er allt annað að sjá þig núna, sagði hún. Hann vissi ekki hve 56 TMM 1992:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.