Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Side 76

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Side 76
hann sýnist bera vott um ytri auðlegð, er í raun fátæktin einber, því að vanþekking er fátækt, hugsunarleysi er fátækt, fegurðar- leysi er fátækt. ( ... ) því að vanþekking er fátækt, hugsunarleysi erfá- tœkt, fegurðarleysi erfátœkt. Við iifum á breyttum tímum, en þó hefur ekkert breyst í raun. Hin ytri staða Ríkisút- varpsins hefur breyst með afnámi einkarétt- ar og tilkomu nýrra útvarpsstöðva og sjónvarpsstöðvar — en í raun er staða Rík- isútvarpsins hin sama og þörfin fyrir það hin sama og í öndverðu. Og það er einfald- lega vegna þess að hinir nýju ljósvakafjöl- miðlar hafa engu bætt við — nema til- gangsleysi. Þeir skipta ekki máli fyrir til- veru okkar, af því að þeir eiga sér hvorki skilgreint hlutverk né hugsjón. Þeir ætla sér ekkert sérstakt annað en að vera til og eltast við það sem þeir álíta vera smekk fjöldans. Það er einmitt í þessu atriði sem við finn- um skýran greinarmun á eðli ríkisútvarps og svokallaðra frjálsra fjölmiðia. Sá sem eltist í sífellu við smekk fjöldans fær engu áorkað, engu breytt. Hann mun aldrei gera nokkurt gagn, fremur en sá sem er alltaf að reyna að vera vinsæll. Hann er líkt og stjómmálamaður sem á þá hugsjón eina að láta kjósa sig. Hann er gagnslaus þegar best lætur, en oftast skaðlegur þegar til alvör- unnar kemur. Því er nefnilega svo farið, að sá sem ætlar að geðjast öllum, endar oftast á því að geðjast engum — sem betur fer — ætti kannski að bæta við. Og sá sem segir öðrum aðeins það sem þeir vilja heyra, hann hefur í raun ekkert að segja. Hinir svokölluðu frjálsu ljósvakafjöl- miðlar lifa samkvæmt því sem nefnt er „lögmál markaðarins" og er orðið ýmsum að nokkurs konar trúaratriði í líkingu við steintöflur þær er Móses bar niður af Sinaí- fjalli. Þetta felst í því að vera háður auglýs- ingatekjum, og til þess að afla þeirra þarf að sýna fram á vinsældir meðal notenda, eins og allir vita. Einkenni slíkra stöðva er lítt vönduð dagskrárgerð með ódýrri af- þreyingu. Það þarf auðvitað ekki að tákna að öll dagskráin sé því marki brennd. Innan um geta verið þættir sem unnireru af nokkr- um metnaði. En afþreyingin er samt meg- ineinkenni. Hugmyndin um ríkisútvarp eða opinber- an ljósvakafjölmiðil er þveröfug. Hún byggist á þeirri skoðun að nauðsyn sé að gefa almenningi kost á vandaðri dagskrá til menningarauka og eflingar þroska. Og jafnframt að slíka dagskrárgerð þurfi að styrkja af almannafé og/eða með fjárfram- lögum til þess beinlínis að gera stöðvamar óháðar eða sem minnst háðar auglýsinga- tekjum. Slíkri hugmynd fylgir með öðrum orðum einnig vantrú á að auglýsingastöðv- ar séu færar um að gegna menningarhlut- verki. í 3. grein útvarpslaga frá 1971 er menn- ingarhlutverk Ríkisútvarpsins skilgreint ljóslega. Þar segir: „Ríkisútvarpið skal stuðla að almennri menningarþróun þjóðar- innar og efla íslenska tungu.“ Svo er sagt nánar hvemig þetta skuli gert: með því að flytja efni á sviði lista, bókmennta, vísinda og trúarbragða, efla alþýðumenntun, halda uppi rökræðum um almenn málefni með þeim hætti að menn geti gert sér grein fyrir mismunandi skoðunum, flytja fréttir og fréttaskýringar, hafa í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og virða tjáningarfrelsi. 74 TMM 1992:2 j
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.