Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 96

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 96
96 II Markhyggja kemur fyrir í flestum handbókum um heimspeki en þá í auka- hlutverki. Í sumum yfirlitsritum um frumspeki samtímans er einfaldlega ekki minnst á hana.14 Hún felur í sér rannsóknir á markmiðum, tilgangi og því sem er kallað „tilgangsorsakir“. Fyrir áhugasama lesendur getur verið snúið að finna texta sem býður upp á nákvæma greiningu á því hvort hug- tök eins og „tilgangur“, „markmið“ og „tilgangsorsakir“ eigi við um sömu fyrirbærin. Einnig er oft ekki ljóst hvort listinn sé tæmandi og hvort fleiri hugtök eigi ekki einnig við. Má þar til dæmis nefna „hlutverk“ sem kom fyrir hér að ofan; og svo auðvitað „ástæður“. „Tilgangur“ er einnig hugtak sem þarf að nota af varfærni. Til að mynda getur spurningin „Hefur heim- urinn tilgang?“ vísað að minnsta kosti til þrenns konar tilgangs. Í fyrsta lagi gæti tilgangurinn vísað til þess að alheimurinn komist í einhvers konar lokaástand eða eigi sér jafnvel „markmið“ ef menn leyfa sér svo mannhverf hugtök. Í öðru lagi gæti okkar heimur haft einhvers konar náttúrulegt hlutverk til að bera, ef fjölheimakenningar eru réttar, sem einn raungerðra möguleika. Að síðustu gæti tilgangurinn verið tilbúið hlutverk sem er valið af skapara heimsins. Hin heimspekilega spurning sem þá biði þess sem talaði um tilgang heimsins væri að greina hvort tilgangurinn sé valinn af nauðsyn eða handahófi. En snúum okkur aftur að hinum heimsfræðilegu ástæðum sem svo voru nefndar. Verufræðin á sér langa hefð sem byggir á þeirri skoðun að verur beri ekki verundarform sín utan á sér. Samkvæmt þessari hefð er raunveru- leiki hverrar veru, sem segir til um sannleiksgildi margs konar staðhæfinga um hana, ekki á yfirborði hennar. Þeir eiginleikar sem eru verufræðilega verur séu til í krafti sjálfra sín, og markhyggju. Sú tenging á svo sem ekki að koma á óvart. Aristóteles gerði það að höfuðatriði í frumspeki sinni að verundarhugtakið stæði fyrir tilgangsmiðuð „organísk“ kerfi og notaði það því ekki yfir annað en ein- stakar persónur, plöntur og dýr; sjá Eðlisfræðina, Bók II, kaflar 1. og 8. 14 Markhyggja kemur nú til dags einna helst fyrir í ritum um siðfræði þar sem rætt er um ástæður athafna, þar sem athafnir eru tilgangsmiðaðar í eðli sínu. Slíkri markhyggju er ekki ætlað að hafa mikið frumspekilegt gildi. Það sama má segja um það þegar markhyggja kemur fyrir í umhverfissiðfræði. Við fyrstu sýn ætti til- gangsmiðuð hugsun að hafa nokkuð fram að færa við mat á náttúrulegum ferlum, en frumspekin sem þyrfti að fylgja slíkri greiningu hefur ekki verið í tísku undan- farið. Markhyggja slapp inn fyrir radar fræðimanna um tíma eftir að út kom ritið The Anthropic Cosmological Principle eftir þá John Barrow og Frank Tipler, Oxford: Oxford University Press, 1986, en í því riti má finna ágæta greiningu á sögu og stöðu markhyggju í nútímaheimspeki og vísindum, sjá einkum bls. 123–218. HeNRy AlexANdeR HeNRySSoN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.