Skírnir - 01.04.1999, Blaðsíða 74
68
ÓSKAR BJARNASON
SKÍRNIR
bænda á tímum Þrjátíu ára stríðsins,57 eða Ævintýri heimsbók-
menntanna sem dreifðu huganum frá sulti og seyru, virðist ekki
hafa tekist að sannfæra hinn almenna þýska lesanda um að kemp-
ur Thule ættu við hann erindi í nútíma heimsstyrjöld.
Stríðsþreyta og bakþankar
Styrjöldin stóð lengur en búist hafði verið við, og hún varð
mannskæðari en menn hafði órað fyrir. Margir hinna ungu vina
Diederichs úr Serahópnum áttu ekki afturkvæmt.58 I upphafi
fjórða stríðsvetrar, haustið 1917, hafði hrifningin frá 1914 fjarað
út og friðarsinnaðri boðskapur tekinn að ríkja í skrifum for-
leggjarans. I greinum sínum í tímaritinu Die Tat skrifaði hann um
„heilagleik alls lífs“ og komandi „ríki andans [...] án ofbeldis“.59
Hann gagnrýndi hræsni stríðsáróðursins: „Við skulum ekki ræða
um kærleik sem í stríði fái tækifæri til að sanna sig með fórnum,
morðingja með hreinar hendur.“ Einnig veittist hann að hinum
þjóðrembulega hægriflokki, Alldeutsche, sem virtist standa í
þeirri meiningu að „Þjóðverjar væru í eðli sínu göfugastir og þess
vegna útvaldir af guði til að drottna yfir öðrum þjóðum".60
En varð ekki að fullnægja hinu germanska stríðseðli? Leitaði
„krafturinn“ sem Niedner hafði lýst ekki útrásar, annað hvort í
stríði fyrir föðurlandið eða innbyrðis erjum? Trú Diederichs á
uppeldishlutverki bókmennta krafðist þess að hann liti nú ís-
lenska söguöld öðrum augum. I tilefni af fjögurra alda afmæli
siðaskiptanna ræðir hann í Tkí-grein um sögulega nauðsyn
kristnitöku á tíma þjóðflokkaerja í Þýskalandi:
57 Der Wehrwolf Qena 1911) tók mikinn sölukipp eftir að styrjöldin skall á en
bókin hafði selst í 300.000 eintökum 1927. Eugen Diederichs. Der deutsche
Buchhandel, s. 41.
58 Meira en helmingur karlkyns Serafélaga féll í stríðinu. Eugen Diederichs. Der
deutsche Buchhandel, s. 33.
59 E. D.: „400 Jahre Reformation" (okt. 1917). Politik des Geistes, s. 90-95, hér s.
95; E. D.: „Vom unerlösten Gott“ (sept. 1918). Sama rit, s. 95-97, hér s. 97.
60 E. D.: „Vom unerlösten Gott“, s. 95; E. D.: „Die Alldeutsche Gefahr“ (sept.
1917). Politik des Geistes, s. 69-74, hér s. 70.