Skírnir - 01.04.1999, Blaðsíða 92
86
ÓSKAR BJARNASON
SKÍRNIR
visku forfeðranna.97 Wirth „las“ í fornleifar, skraut og merkingar
á gömlum húsum, svo fáein dæmi séu nefnd en vísaði líka í eddu-
kvæði máli sínu til stuðnings. Hann taldi t.d. Völuspá og
Hyndluljóð bera visku formæðra sinna vitni en æðri tilgangur
kvæðanna væri að „gera okkur aftur að ljósberum og frelsurum
veraldar“ (s. 626). Wirth virðist ekki hafa leitað mjög til Islend-
ingasagna í fræðum sínum en hann hrósaði Thule-útgáfunni fyrir
að leiða þýskum lesendum fyrir sjónir „andlega arfleifð" þeirra.
Slíkt gæti hjálpað þjóðinni til „sjálfsákvörðunar og sjálfræðis" á
tímum yfirþyrmandi efnishyggju og mammonsdýrkunar, félags-
legrar og andlegrar kreppu.98
Eins og gefur að skilja áttu þessar kenningar ekki alls staðar
hljómgrunn, og þá einna síst í hinum akademíska fræðaheimi.
Hins vegar naut Wirth vinsælda meðal leikmanna og stuðnings
fjársterkra aðila. Þar fór Eugen Diederichs fremstur í flokki. Eftir
nokkurt hik í fyrstu ákvað hann að taka Wirth upp á arma sína.
Hann gaf ekki aðeins út bækur hans og styrkti hann fjárhagslega
heldur stofnaði Diederichs stuðningsfélagið Herman-Wirth-
Gesellschaft og barðist fyrir brautargengi skjólstæðings síns á
opinberum vettvangi. I opnu bréfi til Friedrichs Schmidt-Ott,
forseta öflugs vísindasjóðs og fyrrum menningarmálaráðherra
Prússlands, gerði hann heyrinkunnugt að hér væri fundinn mis-
skilinn „snillingur", „annar Nietzsche", sem sárlega vantaði
styrki til að geta haldið tímamótarannsóknum sínum áfram.99
Meðal yfirlýstra stuðningsmanna Wirths voru Josef Strygowski,
listasöguprófessor í Vínarborg, F. W. Schaafhausen, sagnfræðing-
ur í Hamborg, og Múnchhausen barón, allir þátttakendur í
Thule-könnuninni.100
97 Herman Wirth: Der Aufgang der Menschheit. Untersuchungen zur Ge-
schichte der Religion, Symbolik und Schrift der atlantisch-nordischen Rasse.
I. Die Grundzuge. Jena 1928, s. 9,12, 16, 23.
98 EDVA: „Die Jahrtausendfeier", s. 9.
99 EDVA, Akzidenzen, 1. júlí 1929 - 30. júní 1930: „Der Fall Herman Wirth
oder Das Schicksal des Schöpfertums. Ein Bericht“ [11. okt. 1929], s. 3. Sbr.
sama: „Aufruf zur Grundung einer Herman-Wirth-Gesellschaft.“
100 EDVA, Akzidenzen, 1. júlí 1929 - 30. júní 1930: „Aufruf der Herman-
Wirth-Gesellschaft.“ , [s. 2]. EDVA: „Der Fall Herman Wirth“, s. 20, 22.