Skírnir - 01.04.1999, Page 152
146
GUNNAR KARLSSON
SKÍRNIR
Smith féllust á að pólitískar þjóðir væru nýjar, þeir vildu aðeins
að umræðan tæki til þess hvernig sumar þeirra væru sprottnar
upp úr annars konar þjóðarsamfélögum. Módernistar neituðu að
ræða þá hlið málsins. Ég fellst á það með Guðmundi Hálfdanar-
syni, sem skrifaði skilmerkilega um þessi efni í Skírni fyrir þrem-
ur árum, að munurinn á sjónarmiðunum sé ekki eins mikill og
deiluaðilar vilja vera láta - Guðmundur hefur þessi orð raunar
um Smith einan.11 En leiðin til skilnings á deilunni er held ég sú
að hún fjallar ekki einkum um hvernig sögulega þróunin var,
heldur hvaða hluta hennar sé rétt að ræða. Deilan er ekki um
staðreyndir heldur um mikilvægi.
Auðvitað hafa ekki allir fræðimenn alls staðar gengist módern-
ismanum á hönd. í Noregi hafa menn deilt ákaft um þjóðernis-
hyggju og þjóðernislega sjálfsmynd Norðmanna á miðöldum.
Árið 1995 skrifuðu tveir framúrskarandi norskir sagnfræðingar,
Sverre Bagge og Káre Lunden, greinar um það efni á ensku í sama
tímaritsheftið. Ég geri ráð fyrir að þeir hafi átt að vera fulltrúar
fyrir andstæð sjónarmið, en hvorugur þeirra gengur þó eindregið
í lið módernismans, ef við gerum ráð fyrir að þeir noti orðin
nation og national í sannri enskri merkingu. Af niðurlagsorðum
þeirra einum getur hæglega þvælst fyrir manni hver ágreiningur
þeirra er, jafnvel hvor er málsvari módernískari sjónarmiða.
Lunden ályktar „að það sé skynsamlegt að álykta að það sem
kalla má [pólitíska?] þjóðernisvitund [national consciousness]
hafi þróast í Noregi á hámiðöldum, að minnsta kosti meðal höfð-
ingjastéttar, líklega líka meðal sveitaalþýðu".12 Bagge lýkur sinni
grein á ályktuninni: „Noregur var ekki nútímalegt þjóðríki
[modern nation state] á miðöldum, heldur hófleg gerð af gamal-
dags valdhafaríki [authoritarian state] með viss þjóðernisleg
[national] einkenni, sennilega meira af þeim en flest önnur ríki á
miðöldum eða á upphafsskeiði nýaldar.“13
11 Guðmundur Hálfdanarson: „Hvað gerir íslendinga að þjóð?“, 18.
12 Kire Lunden: „Was There a Norwegian National Identity in the Middle
Ages?“ Scandinavian Journal of History XX:1 (1995), 31.
13 Sverre Bagge: „Nationalism in Norway in the Middle Ages.“ Scandinavian
Journal of History XX:1 (1995), 18.