Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Qupperneq 42
1879
32
31
27. febr.
32
28. febr.
33
5. marz
— Brjej' landsliufðingja til amtmanmiiu yfir vesturumdœminu um að leggja
niður nokkrar purrakúðir. — Eptir að felldar liöfðu verið samkvæmt brjef-
um dómsmálastjórnarinnar og landshöfðingja frá 25. júlí 1867 og 3. júní 1875 8 þurra-
búðir á jörðinni Ingjaldshóli, er heyrir undir Arnarstapaumboð, hafið þjer, lierra amt-
maður, með brjefi 19. þ. m. sent mjer erindi hlutaðeigandi umboðsmanns, þar sem liann
mælir fram með því, að ábúanda nefndrar jarða'r verði leyft aptur að leggja niður 4 af
þeim 8 þurrabúðum, er eptir eru á umboðsjörðinni.
Af þessu tilefni vil jeg, með því að bæði þjer og umboðsmaðurinn fullyrð-
ið, að jörðin Ingjaldshóll sje engu óbyggilegri, þó nefndar þurrabúðir sjeu lagðar nið-
ur, með því að landssjóðurinn engar tekjur hefir af þeim, og með því að hlutaðeigandi
hreppsnefnd hefir vottað, að þurrabúðirnar hafi fallið úr byggingu sökum iiskileysis og
fátœktar almennings þar um sveitir — hjer með samþykkja, að þessar þurrabúðir verði
felldar af, þegar búið sje að skila þeim af liendi í fullgildu standi eða með ofanálagi, og
viðirnir og annað fjemætt úr þeim sje selt á almennu uppboðsþingi, en fyrir andvirði
því, sem inn kemur, og ofanálaginu, sem metið verður, skal umboðsmaður gjöra grein í
reikningi sínum fyrir tekjum umboðsins.
petta er yður tjáð, herra amtmaður, til þóknanlegrar leiðbeiningar og ráðstöfun-
ar, og vona jeg síðau að fá skýrslu frá yður um það, sem gjört verður í þessu máli.
— Brjef landsliufðingja til póstmeistarans um póknun handa pósti. — Með
þóknanlegu brjefi frá 19. þ. m. hafið þjer, herra pöstmeistari, sent mjer bónarbrjef pósts-
ins milli Akureyrar og Reykjavíkur, Daníels Sigurðssonar, um skaðabœtur fyrir slys, er
liann hafi orðið fyrir á fyrstu póstferð sinni á þessu ári, þar sem einn af klyfjahestum
hans hafi hrapað af svo nefndum Iiattarhrygg í Norðurárdal, þannig að nauðsynlegt var
þegar í stað að skera hestinn á háls. Með því að Daníel hefir reynzt ötull og áreiðan-
legur póstur, og með því að slys þetta virðist ekki hafa orðið fyrir neina handvömm
hans eða hirðuleysi, leggið þjer til, að honum verði bœttur úr póstsjóði hálfur skaðinn,
er hann hefir orðið fyrir, með 30 krónum.
Fyrir því vil jeg tjá yður til þóknanlegrar leiðbeiningar og ráðstöfunar, að jeg
fellst á, að tjeðum pósti verði í þóknunarskyni greidd úr póstsjóði hin áminnzta upphæð.
— Brjef landsliufðingja til amtmannsins yfir suðurumdoeminu um svcitars tyrk.
— Eptir að þjer, herra amtmaður, í brjefi frá 23. apríl 1877 höfðuð úrskurðað, að Hraun-
gerðishreppur ætti að endurgjalda Villingaholtshreppi 20 kr., er hinn síðarnefndi haustið
1876 lagði ekkjunni Steinunni Jónsdóttur á Kolshóli, áfrýjaði hreppsnefndin í Hraungerðis-
hreppi þessum úrskurði, og vil jeg nú, aö íhuguðum þeim nýju skýringum, er siðan hafa
komið fram meðal annars með 2 rjettarprófum, er haldin hafa verið samkvæmt skipun
minni, tjá yður það, er nú segir til þóknanlegrar leiðbeiningar og birtingar fyrir hlutað-
eigöndum.
Áfrýjendurnir játa, að Steinunn hafi, þá er hún þáði áminnztan styrk, verið sveitlæg
í Hraungerðishreppi; en þeir halda því fram, að hún hafi ekki þurft styrksins, að hún,
þó hún hefði þurft hans, hefði getað fengið hann hjá 3 börnum sínum af fyrra hjóna-
bandi, er þá voru nýbúin að taka nokkurn arf, og að Villingaholtshreppur liafi neytt
upp á hana styrknum. Hvað nú fyrst snertir hina síðastnefndu ástœðu, þá hafa að vísu