Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Page 132
1879
122
135
17. sept.
130
19. sept.
137
20. sept.
að var, að upphæð 94 kr. 30a., hefir vísað til skipseigandanna, en þeir hafa ekki svarað
neinu upp á erindi það, sem «böard of trade» beindi að þeim í þessa stefnu.
Ráðgjafinn hefir út af þessu hlutazt til þess, að 80 kr. 50 a., er samkvæmt
skýrslu utanríkisráðgjafans er sá hluti, sem hinum íslenzka landssjóði ber af hinni
endurgoldnu upphæð, verði greiddar í aðalrikissjóðinn sera tekjur fyrir jarðabókarsjóð ís-
lands.
Jafnframt því að skýra yður, herra landshöfðingi, frá hinu framantalda til
þóknanlegrar leiðbeiningar, virðist ráðgjafanum ástœða til, eptir því sem fram er kom-
ið, að leiða athygli yðar að því, að þegar haft er tillit til þeirra örðugleika, sem eru
því samfara að fá útgjörðarmenn, farmseigendur eða aðra hlutaðeigendur, til að endur-
gjalda landssjóði þá upphæð, sem bjarglaunin fyrir vörur af skipum þeim, sem brotna
við strendur íslands, kynnu að verða meiri, en uppboðsverði varanna svarar, mun það
vera hollast fyrir landssjóðinn, að samningur um björgun skips og vara, þegar svo
stendur á, að ekki verður sjeð með vissu, að verðupphæð vara og skips vinnist til
lúkningar á bjarglaununum, sje gjörður á þann hátt, sem til er tekið í lögum um sldpa-
strönd frá 14. janúar 1870 § 7. síðara kaíia, og borgun sje ekki ákveðin í dagiaunum,
heldur takmörkuð, eins og til er tekið i greininni, þannig, að bjarglaunin verði nokkur
hluti af verðupphæö hins bjargaða fjár.
— Brjef landsliöfðingja til amlmannsins yfir norður- og austurumdœminu um
borgun aukatekja. — Eptir að hafa meðtekið álit yðar, herra amtmaður, um
erindi sýslumannsins í Norðurmúlasýslu, þar sem hann fer þess á leit, að sjer verði
leyft að borga aukatekjur með ávísunum hljóðandi upp á borgun 3 mánuðum eptir
sýningu — vil jeg biðja yður að tjá nefndum sýslumanni þetta: ]pað loiðir af því, að
flestöll embættisverk þau, sem aukatekjur oru ákveðnar fyrir, eiga að borgast fyrir-
fram, að optast getur það eigi komið til tals, að taka innskript oða ávísun frá kaup-
manni, sem gilda borgun upp í þessar tekjur. Spurningin virðist, eins og sýslumaður-
inn einnig bendir á, að eins að geta komið fram við sldpti á búum, sem ekkert upp-
boð er haldið í, en annaðhvort eru afhent (extraderuð) erfingjum eða skuldheimtu-,
mönnum ellegar skipt eptir virðingu. J>að virðist nú.þegar svo er ástatt, ekki geta vcrið
neinum örðugleikum bundið á þeim skiptafundi, þar sem gjört verðúr út um það, hvort
uppboð eigi að fara fram í búinu eða ekki, að ætla á, hvað skiptakostnaður og erfða-
gjald í búinu muni vorða, og aðvara hlutaðeigendur um, að útvega tímanlega fje það,
sem með þarf í þessi gjöld, en skyldi í einstökum tilfellum ekki .verða mögulegt að láta
hlutaðoigandi erfingja eða skuldheimtumenn fá mátulegan frest til að útvega pening-
ana, get jeg ekki sjeð noitt verulegt því til fyrirstöðu, að tekin yrði sem gild borgun
innskript hjá árciðanlegum kanpmanni og 3 mánaða ávísun.
— Ágrip af ltrje.fi laildshöfðingja til amtmarínsins yfir suðitr- og vcslurumdœminu um
styrk til 1 andb ún að arnáms. — Samkvæmt tillögum amtsráðs suðurumdœm-
isins var af fje því, er moð fjárlögunum fyrir 1878 og 1879 var veitt til eílingar land-
búnaði og sjávarúlvogi, veittur Birrii Bjarnarsyni frá Vatnshorni 200 kr. styrkur til að
halda áfram námi sínu við landbúnaðarskólann á Stend og með þeim skilyrðum, að hann
á optir starfi að jarðabótum í suðurumdœminu, og að hann sjerslaklega búi sig undir að
gcta sagt fyrir um framkvæmdir til að stemma stigu fyrir sandfoki,