Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Page 134
1879
«40
22. sept.
l4i
23. sept.
124
beiðni Benedikts Oddssonar í Gjarðey um styrk til þess að læra leirkerasmíði á Jótlandi
eða í Noregi og siðan útvega sjer hin nauðsynlegu áhöld til þess, að byrja lijer á landi
reglulegan atvinnuveg sem leirkerasmiður, vil jeg biðja yður að tjá beiðandanum, að
það er hvorttveggja, að sem stendur er ekkert óeytt af fjo því, sem veitt er til
verklegra framfara á tímabilinu 1878—79, enda gæti varla komið til tals, að veita fje
úr landssjóði til slíks fyrirtœkis, nema því að eins. að hlutaðeigandi amtsráð vildi
leggja fram fje til mdts við styrkinn úr landssjóði; því geti fyrirtœki þetta haft nokkra
þýðingu fyrir almenning, mun hjerað það og landsfjórðungur sá, cr hlutaðeigandi er
búsettur í, fyrst og fremst hafa gagn af því.
— Brjef landsliöfðingja til amtmannsins yfir suður- og vesturumdœminu um
laun lij er a ð slæknis. — Eptir að jeg með þóknanlegu brjefi yðar, herra amt-
maður, frá 3. maí þ. á. hefi meðtekið bónarbrjef frá hjeraðslækninum í 6. læknishjcr-
aði, porvaldi Jónssyni, þar sem hann fer þess á leit, að sjer verði frá 1. janúar þ. á.
veitt hálf laun, sem settum hjeraðslækni í 5. iæknishjeraði, vil jeg, jafnframt því að
benda á brjef ráðgjafans frá 5. júlí þ. á. (stjórnartíð. B. 106.) tjá yður það, sem nú
skal greina, til þóknanlegrar leiöbeiningar og birtingar fyrir hlutaðeiganda.
Með því að hið 5. læknishjerað hefir að undanförnu verið hluti af hinu nyrðra
læknishjeraði vesturumdœmisins, þar sera beiðandinn er skipaður læknir með veitingar-
brjefi frá 6. febrúar 1865, og með því að lög um breytingu á læknishjeruðunum frá
15. oktbr. 1875 í 3. grein ákveða, «að eldri læknahjeraða skiptingin skuli haldast^
þangað til smámsaman er búið að skipa hjeraðslækna í hin nýju embætti», og með
því að sú bráðabirgðaráðstöfun1, er kom því til leiðar, að þessu læknishjeraði var gegnt
af öðrum á tímabilinu frá 1870—1878, ekki heíir gjört neina fullnaðarbreyt-
ingu á læknishjeraðaskipuninni, að því er lýtur að þeim hluta Barðastrandarsýslu, sem
lagður er til 5. lœknishjeraðsins, því að lögin frá 15. oktbr. 1875 3. gr. ákveða, oins
og áður er getið, með berum orðum, að hin eldri læknishjeraðaskipau skuli haldast,
þangað til búið sje að skipa hjeraðslækna smámsaman í hin nýju læknishjeruð, sem
stofnuð eru með þessum lögum — getur beiðandinn ekki átt lagaheimting á aukaborg-
un, þótt hann hafi verið settur fyrst um sinn frá 1. janúar þ. á. til að gegna hjeraðs-
læknisstörfum í þeim hluta af hinu upprunalega læknishjeraði hans, sem með lögum
frá 15. oktbr. 1875 er lagt til 5. læknishjeraðs, en sem verður í raun og veru fyrst þá
stofnað sem nýtt læknishjerað, þegar hjeraðslæknir verður skipaður í það fyrir
fullt og allt.
EMBÆTTASKIPUN.
Hinn 20. dag scptbrm. tók ráögjafinn fyrir ísland samlcvæmt beiöni Jóns A. Svoinssonar
aptur löggildingu [>á, cr honum hafði verið veitt 14. ágúst f. á. til að vora settur kennari við hinn
lærða skóla í Reykjavík, pannig að hann skyldi tolja lausan við embættið frá 15. s. m.; og s. d. var frá
sama degi cand. philol. Sigurður Sigurösson settur 1 þetta embætti með 2000 kr. árslaunum og
með skuldbindingu ti), ef þess er krafizt, að gegna umsjónarmennskunni við tjeðan skóla án sjorstaks
endurgjalds.
1) Sjá brjef dómsmálnstjómarinnar 12. oktbr. 1870 f tiðindum um stjórnarm. III bls. 103.