Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Blaðsíða 118
Va l u r G u n n a r s s o n
118 TMM 2010 · 2
Í skáldsögunni Trúðnum fjallar Böll um ástandið í Þýskalandi áratug
eða svo eftir stríðslok. Þar sem uppgjörið hafði ekki verið fullnægjandi
lágu allir undir grun.
Hann hafði rödd ósvikins húsbónda og óhvikuls þýsks manns og þetta „mikið
var“ hjá honum hafði hljómað eins og „Miðið byssunum“.15
Sumir voru óumdeilanlega sekir, en það skipti ekki máli:
Nýr liðhlaupi hafði verið skotinn uppi í skóginum. „Þannig fer fyrir öllum,“
sagði Brühl, „sem skorast undan að verja okkar heilögu þýsku grund fyrir
Kanajúðunum.“ Fyrir skemmstu hitti ég hann á ný. Núna er hann orðinn
gamall, hvíthærður prófessor við Kennaraháskólann. Litið er á hann sem mann
með „hugumstóra fortíð í stjórnmálum“ af því hann var aldrei í f lokknum.16
Fyrir Böll varð meira að segja iðrunin hræsnisfull.
Það sem olli mér óróleika … var grandaleysi útflytjendanna sem höfðu snúið
heim. Þeir voru svo snortnir af allri þessari iðrun og hinum útblásnu lýðræðis-
játningum að menn voru sífellt að mynda bræðralög og fallast í faðma. Þeir
skildu ekki að leyndardómur skelfingarinnar felst í smáatriðunum.17
Rétt eins og allir höfðu sinnt skyldum sínum gagnvart nasismanum
sinntu nú allir skyldum sínum gagnvart iðruninni. Þýsk iðrun var nú
höfð í hávegum eins og hernaðarhyggjan hafði verið áður fyrr.
Nasistar og kakkalakkar lifa allt af
Böll kemur jafnframt með skýringu á því hvers vegna svona margir
nasistar lifðu stríðið af:
Útflytjendurnir vita ekki heldur að aðeins fáir nasistar voru sendir til vígstöðv-
anna. Það voru nær eingöngu hinir sem féllu … Kalick hefði aldrei verið sendur
til vígstöðvanna. Hann rakti slóðina, eins og hann rekur slóðina í dag. Hann er
fæddur slóðreki. Málin stóðu reyndar á allt annan veg en útflytjendurnir halda.
Þeir geta auðvitað einungis skipað mönnum í flokka eins og sekur, ekki sekur,
– nasisti, ekki nasisti.18
Það eru ekki aðeins þeir sem skipulögðu voðaverkin sem eru sekir, þeir
seku eru ekki síður hinir sem hlýddu. En það er óþægilegt þegar sektin
er orðin svo víð. Í nýlegri þýskri sjónvarpsmynd, Die Brücke eftir leik-
stjóra sem ber hið ógnvekjandi nafn Wolfgang Panzer, er sagt frá deild