Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Side 44

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Side 44
G í s l i S i g u r ð s s o n 44 TMM 2015 · 1 Landnámu. Vitað er að slíkar upprunaskýringar voru ritaðar í Landnámu og langlíklegasta skýringin á því er sú að örnefni og sögur hafi lengi farið saman. Að það hafi verið fólki tamt að rifja upp og segja sögur af fólki og atburðum í tengslum við umhverfi sitt, hvernig örnefni á helstu kennileitum komu til, hvernig landamerki voru skilgreind, hvernig leiðir lágu um landið sumar og vetur, hvað bæri að varast á sjó og á landi, hvar mætti vænta fiskjar og reka o. s. frv. Munnlegar sögur eru hvarvetna notaðar í hefðbundnum munnlegum samfélögum til að kortleggja landið og miðin og himinhvolfið; frá veraldlegum og raunsæislegum sögum í nærumhverfinu til ævintýralegri frásagna eftir því sem fjær dregur í tíma og rúmi og loks goðsagna þegar komið er út fyrir ystu sjónarrrönd og upp á himinhvolfið sem er ávallt og ævinlega fyrir allra augum og kallar hvarvetna á byggðu bóli á örnefni og sögur og skýringar á því sem blasir við hinum viti borna og jarðbundna manni á himninum. Ekki skáldað útfrá fróðleiksmolum Sagnalistin og upprunaskýringar örnefna eru ekki uppfinning ritlistarinnar og því er óeðlilegt að ganga út frá því að höfundar Landnámu séu að skálda upprunaskýringar á örnefnum, búa til landnámsmenn út frá einu saman örnefninu. Að því sögðu verður um leið að vera vakandi fyrir því að heim- ildagildi hinnar munnlegu hefðar um löngu liðinn raunveruleika er jafn óvíst fyrir því. Hugmyndir manna um fortíðina eru síbreytilegar eftir aðstæðum, upprunaskýringar um landamerki eru til dæmis líklegar til að taka breytingum ef jarðir stækka eða minnka; mikils háttar fólk í fortíðinni ræðst af því hverjir eru mikils háttar í samtíðinni og hafa hag af að halda minningu forfeðra sinna og formæðra á loft. Það fer algjörlega eftir heim- ildarmanni hvernig fortíðin lítur út, engar tvær manneskjur hafa sömu sögu að segja. Ekki fyrr en ritheimildir koma til sögunnar. Með tilkomu ritheimilda verður í fyrsta skipti mögulegt að varðveita orð- réttar frásagnir og kvæði á milli kynslóða svo tryggt sé. Slíkur möguleiki er þó engin ávísun á að það hafi verið gert því eins og sjá má af hinum varð- veittu Landnámugerðum héldu höfundar þeirra engu að síður áfram þeim munnlega sið að laga efnið í hendi sér, upphefja sig og sína ætt, hver í sinni gerð, auka við efni úr eigin ranni en jafnframt að nýta það sem þegar hafði verið skráð og öðlast þar með yfirsýn um stærra svæði og fleiri fjölskyldu- hefðir en nokkrum einum manni var mögulegt að öðlast á munnlegu stigi. Hugmyndin um að geta sagt sögur af öllu Íslandi á einum stað, eins og í Landnámu, krefst mikillar söfnunar úr ólíkum áttum –  sem hefur kallað á mjög samstillt átak af því tagi sem nú þekkist eingöngu úr stærstu rann- sóknar- og átaksverkefnum á vegum ríkisvaldhafa sem vilja oft skrásetja alla heimsbyggðina eins og minnst er árlega í jólaguðspjallinu. Landnáma er áreiðanleg heimild um þær sögur og hugmyndir sem fólk
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.