Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Side 50
Þ o r s t e i n n Þ o r s t e i n s s o n
50 TMM 2015 · 1
réttarbætur til handa blökkumönnum og minnihlutahópum. Eitt afar mikil-
vægt einkenni tímanna er rétt að nefna enn, sumsé það fyrirbæri í kjölfar
heimsstyrjaldarinnar síðari sem kallað hefur verið baby boom.8 Ungu fólki
á skóla aldri fjölgaði mjög á Vestur löndum á sjöunda og áttunda áratugn um,
háskólar tóku stakka skiptum, nem endum fjölgaði ár frá ári og voru yfirleitt
mun róttækari en áður hafði tíðk ast. Í kjölfarið fylgdi svo meiriháttar theory
boom í bókmenntafræðum!
Með nokkrum sanni má segja að í kenningahvörfunum hafi falist það
sem Nietzsche kallaði Umwertung aller Werte, eða endurskoðun allra gilda.
Upptök breytinganna voru pólitísk og látið var í veðri vaka að svo væri enn
löngu eftir að baráttan var að verulegu leyti farin að snúast um feita tékka.
5
Spurning sem bókmenntafræðingur og ritskýrandi við upphaf 21. aldar
hlýtur að velta fyrir sér má orða svo: Hvaða beina gagn hefur hann af kenn-
ingum formal isma, strúktúralisma, sálgreiningar, marxisma, femínisma,
post-strúkt úral isma og af byggingar, söguhyggju eldri og yngri, síðnýlendu-
fræði, menn ingar fræða osfrv. við rannsókn á nokkrum ljóðum frá fyrrihluta
tuttugustu aldar á Íslandi? Mín skoðun er sú að óvarlegt sé að hafa ekki all-
góð kynni af þessum straum um. Það sé þó mjög misjafnlega brýnt og sumt
skipti engu máli. Mun gagn legra er, að mínum dómi, að hafa góð kynni af
samanburðar bókmenntum og evrópskri bók mennta sögu gamalli og nýrri,
að ekki sé nú talað um þokkalegt næmi á bók menntir. Ég er sannfærður
um það fyrir mitt leyti að bók menntaumfjöllun og ritskýring af því tagi er
mikilvægari en kenninga smíð eða tilvísun til kenni manna. En þetta eru að
sjálfsögðu atriði sem hver og einn verður að gera upp við sig.
Er þá teoríutímabilið að baki? – Það er nú eflaust ofmælt en High Theory-
tímabilið, sem svo er kallað á ensku, er löngu liðið. Snöggtum minna líf er
í teoríutuskunum en fyrir aldarfjórðungi eða svo. Og um síðustu aldamót
kom út hver bókin eftir aðra með orðin After Theory eða ámóta kveðjuheiti
í titli eða undirtitli.9 Meðal annars ein eftir sjálfan kenningapáfann Terry
Eagleton, sem álasaði þar Teoríu meðal annars fyrir að hafa vanrækt ýmis
mikil væg vandamál manna, siðferði leg og önnur sem skipti okkur öll höfuð-
máli í lífinu, svo sem ást, trú, hið illa, þjáningar, dauðann; ellegar sann leik,
hlutlægni, rétt sýni; og bætti því við að þetta væri nú býsna stór sneið mann-
legrar tilveru.10 Bandaríski kvenna sögu fræðingurinn Elaine Showalter svar-
aði Eagleton í alllöngu máli og spurði meðal annars: Skyldu ekki bókmennt-
irnar sjálfar fremur en kenningar geta veitt okkur hjálp þegar spurningar
sem þessar leita á huga okkar?11
Hér er greinilega komið að mikilvægu máli. Einn helsti ágalli teoríutíma-
bils ins var að líkindum ónæg áhersla á gildi bókmennta. Lítt var spurt:
Hvaða ágóða höfum við af því að lesa góðar bækur? Siðbætandi inntak