Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 61

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 61
„ H ú s i n e r u e i n s o g o p i n b ó k “ TMM 2015 · 1 61 Fyrir þá sem hafa fengið nasasjón af kenningum Joseph Campbell um ferð hetjunnar er þetta kunnuglegt.42 Þetta er hetjusaga sem hefur verið sögð eftir sömu formúlu svo öldum skiptir og hér fær Guðjón svo að segja sömu meðferð hjá Jónasi og Logi Geimgengill fær hjá George Lucas tuttugu árum síðar.43 Að því sögðu kann sú spurning að vakna að hvaða marki þessi frásögn liggur til grundvallar sögu annarra íslenskra lista- og menntamanna en hér gefst ekki tóm til að fara í saumana á því.44 Það er óneitanlega athyglisvert að velta því fyrir sér hvort kom á undan eggið eða hænan, eða með öðrum orðum: Hvort þjóðlegar tilhneigingar og til- raunir hafi blundað í Guðjóni frá upphafi eða hvort þær hafi komið eftir á og fyrir tilstuðlan túlkunar Jónasar frá Hriflu. Hitt er víst, að það er enginn sem leggur sig jafnmikið fram og Jónas við að auglýsa Guðjón og verk hans, í ræðu og riti, sem afsprengi þjóðar er geymir gildi sín frá gullinni fortíð. Og þegar leiðir þeirra mætast leggur Guðjón aukinn þunga í leit sína að þjóðlegum stíl. Hamrastíll: (kald)hamrað landslag og lund Tvær tilraunir sem Guðjón gerði munu alltaf vera taldar til mikilla viðburða í íslenskri byggingarlist. Annars vegar er áðurnefnd tilraun hans til þess að endurvekja, eða bjarga, gamla sveitabæjarstílnum á öld steinsteypunnar. Almennt er fallist á að tilraunin hafi verið góð og gild, hún kallaði fram viss þjóðleg blæbrigði en var óhentug þegar upp var staðið – sér í lagi í íslenskri veðráttu. Árið 1957 er skrifað að það verði ekki „annað sagt en að tilraun Guðjóns Samúelssonar með að bjarga gamla sveitabæjarstílnum inn á öld steinsteypunnar hafi misheppnast. Það skildi hann bezt sjálfur, og leitaði hugur hans nú inn á aðrar brautir“.45 Gera má ráð fyrir að hinar brautirnar hafi tengst hinni megintilraun hans, þar sem hann leitaði fyrirmynda úr íslenskri náttúru sem hann gat steypt í mót sín í stað þess að særa upp gamla drauga í formi burstabæja.46 Það má segja að það birtist vísir að einbeittri hugsun þessa efnis í grein sem Guðjón skrifar í Tímarit V.F.Í. í upphafi fjórða áratugarins. Þar rekur hann meðal annars byggingarsögu Íslands allt aftur til landnámsmanna og lýsir þeim vandkvæðum sem hlutu að fylgja húsagerð þeirra tíma sökum þess hve byggingarefni hríðversnaði þegar hingað var komið. Ljósið í myrkrinu mun þó hafa verið að kringumstæður hafi von bráðar mótað alla íslenska húsagerð og þessir „íslensku „bæir“ litu vel út og voru eins og sprottnir úr íslenska jarðveginum“.47 Hér ber að veita orðunum „sprottnir úr íslenska jarðveginum“ sérstaka athygli.48 Guðjón er sýnilega enn á hnotskógum eftir einhverri leið þar sem hann getur steypt þjóðarsálina í varanlegt efni því hann segir ekkert til sem kalla megi „þjóðlegan íslenskan byggingarstíl, nema ef vera skyldi gömlu burstabæirnir – Steinsteypan er of ný í þessu landi til þess að búast megi við, að sérkennilegur stíll úr þessu efni hafi skapast, er sé í samræmi við íslenskt landslag og íslenska þjóðarlund“.49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.