Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 104

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 104
Þ o r s t e i n n A n t o n s s o n 104 TMM 2015 · 1 og þekkingu á náttúrfari umhverfisins á heimaslóðum og kveður þar hvert orð við annað um þann unað allan sem þar var að finna á þessari sjávarjörð meðal fugla, ilmríkra grasa og annarrar lifandi náttúru. Ekkert segir þó af fólki í þeim skrifum. „Dýrasaga“ Ástu fjallar um skapbráðan kotbónda sem níðist á barni sínu og konu, einkum tilfinningalega. Og þegar svo fer, að hann mætir nokkru mótlæti sjálfur frá dótturinni, tekur hann einnig að beita líkamlegum mis- þyrmingum. Karl þessi er að minnsta kosti ódæmigerður í því að hann hefur vitsmuni til að níðast á barninu kerfisbundið með sögu sem hann spinnur upp og heldur að barninu og miðast við að ganga fram af eðlislægum þörfum þess fyrir umhyggju, bæði annarra og sína eigin. Varla verður framhjá því horft, að þessum píslum barnsins vindur fram með þeim hætti að kynhvöt karlsins hljóti að teljast með í spilinu, þótt hvergi komi neitt fram um bein afskipti hans af því tagi. Hann lætur duga að draga barnssálina inn í hugaróra sína sem bundnir eru kvalalosta hans sjálfs, lætur barnið kenna máttar síns og afvegaleiddra ástríðna með orðaspuna sínum. Minnimáttarkennd auð- vitað eins og annarra sadista. Ásta umturnar dalakofasælu sveitasagna frá hennar tíð og fyrir þann tíma með martröðum „Dýrasögu“, „Frostrigningar“ og „Huggunar“ þar sem harðast er gengið fram í að lýsa miskunnarleysi manns og vanmætti þess sem fyrir verður. Og jafnvel orðfæri „Dýrasögu“, flámæli, hik, stam, er afhjúpandi svo að virðist tilvísanir á raunverulegar persónur sem fundnar verði í manntölum og prestþjónustubókum frá því snemma á síðustu öld og áður. Sögur Ástu voru skrifaðar um og upp úr miðri síðustu öld. Hvað sem öðru líður var tilgangur hennar með þeim vísvitaður, hinn sami og margra annarra innlendra höfunda á tíma kalda stríðsins, að innleiða nýjan til- vistarskilning á tímamótum í þjóðarsögu okkar. Erlendis, einkum á megin- landinu, höfðu heimspekingar um áratuga skeið gert sér far um að koma á framfæri sannfæringu sinni um mótstæður manns og heims með ritgerðum, sögum og leikritum; þær að maður sé eitt, heimur annað og ekki gangi saman með þessu tvennu, hvort sem svo hefur nokkurn tíma verið eða ekki; einkum væru siðferðislegar lausnir á ósamræminu úr sögunni. Ekkert væri í stöðunni annað en horfast í augu við þann beiska sannleika, að manninum og þá menningu hans væri ofaukið í veröldinni og eins gott að láta duga að leita réttlætingar sinnar meðal annarra manna. Lengra dygði ekki að haga leitinni. Umbrot Ástu – í bókmenntafræðilegum skilningi – má vel sjá sem tilraun til að móta fyrir sér nýja grein íslenskra bókmennta sem svari því áliti að ekkert gengur upp sem menn áhrærir og nærtækt þá að tala um hryllingsagnagerð í því sambandi. Lítið hafði farið fyrir slíkum skáldskap hérlendis fram að því að sögur hennar tóku að birtast og þær ollu fjaðrafoki af því tilefni og fleirum; sögur um fólk sem mætir mótlæti án þess að fundin verði á því önnur skýring en grimmd og óvitaskapur næsta manns. Ólafur Jónsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.