Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Side 31
É g v e r ð a l l t a f s v o h i s s a
TMM 2016 · 3 31
ég held það sé rangt, hún gæti það ef hana langaði til. Kannski er þetta ekki
hugrekki, heldur áhugi.
Hvar annars staðar vildirðu búa, sveit, staður, borg?
Já, ég get alveg hugsað mér sveit, á aðgang að eyðifirði fyrir vestan og er
þar stundum og borða það sem veiðist. Svo eru margar útlenskar borgir þar
sem ég hef búið í styttri tíma og gæti hugsað mér að búa í lengri tíma: Zagreb,
Berlín, Edinborg, Barcelona.
Ertu kvöldsvæf, næturhrafn?
Næturhrafn.
Ertu ævintýragjörn, nýjungagjörn?
Nei, ekki nýjungagjörn, mjög fastheldin, einhver mesta vitleysa sem ég hef
gert er að fá mér snjallsíma, það var í síðustu viku, ég er sein, vil hafa gamla
tækið eins lengi og það dugar, hvort sem það er vasadiskó eða talsími.
Það er nýtnin frá Akranesi.
Ævintýragirni er skilgreiningaratriði – jú kannski, ef maður hugsar um
landakortið og sér staðina sem ég hef farið á, en nei, ef maður hugsar um fólk
sem fer í hjálparstarf til Indlands.
Hver er uppáhaldsmálsverðurinn þinn?
Karbonaði, raspsteiktar lærisneiðar með sultu og sósu og öllu.
Áttu þér uppáhaldssögupersónu?
Jonathan Harker sem segir Drakúlasöguna, vegna þess hvað hann er lengi
að fatta að þetta sé Drakúla, alltaf smá skelkaður en trúir ekki eigin augum.
Svo þótti mér alltaf vænt um Nonna litla í Sjálfstæðu fólki sem talaði við
eldhúsáhöldin. Ég neitaði að fara á leiksýninguna í Þjóðleikhúsinu um árið
þegar ég frétti að búið væri að steypa honum saman við annan af bræðrum
sínum og sleppa hinum þriðja.
Uppáhaldspersónu í raunverulega lífinu?
Ég biðst eiginlega undan að svara en segi samt amma Alda. Í henni er öll
menning tuttugustu aldar, hún er bæði Hollywood og aðbúnaður aldraðra
og allt þar á milli. Hún talar raunar um hina sem gamla fólkið, hún upplifir
sig ekki sem ein af því. Karakterinn er sterkari en líkamlegt ástand, hún er
fyndin, frumleg og á kostuleg tilsvör. Sumir lenda í því að karakterinn feidar
út, inn í sjúkdóm eða ástand; það er svo þakkarvert þegar það gerist ekki.
Áttu þér fyrirmynd?
Fyrirmyndirnar eru höfundar sem gera engar málamiðlanir, hafa ákveðið