Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Blaðsíða 34
34 TMM 2016 · 3
Steinar Bragi
Páfastóllinn
Yfir morgunmatnum hafði ég kveikt á CNN þar sem Larry King tók við-
tal við tvær konur. Þær héldu því fram að þær hefðu séð geimskip – ásamt
þúsundum annarra – að kvöldi til utan við heimili sitt í Texas.
Lítill feitur karl var til andsvara. Hann hafði aldrei séð geim-skip og virtist
sannfærður um að öðrum væri það ómögulegt líka. Eftir stutt skoðanaskipti
hlógu konurnar báðar og Larry glotti, litli karlinn hristi höfuðið, var súr og
sagði að þær hefðu líklegast séð veðurathugunarbelg. Konurnar hlógu enn
meira þar til Larry stoppaði þær og önnur þeirra endurtók:
„Þetta sem við sáum var búmerang-laga. Á stærð við tvo eða þrjá fót-
boltavelli, ekki lítinn loftbelg. Ég treysti mér til að þekkja muninn! Skipið
var risavaxið og þögult, lyktarlaust, en það áhrifaríkasta í minningunni var
að sjá eitthvað sem er svona stórt en samt þögult, skiljiði. Það var algjörlega
þögult, þetta risastóra objekt. Stjörnurnar á himninum hurfu þegar það sigldi
yfir okkur.“
„Þúsundir manna sáu þetta,“ sagði hin konan og kinkaði kolli. „Við vorum
vissar um að sjá umfjöllun í fréttum daginn eftir. Við hringdum á flugvöll-
inn til að athuga hvað þetta gæti verið en þeir sögðu að það væri bannað að
fljúga yfir svæðið þar sem við búum og engar vélar ættu að vera þarna. Þá
flettum við bara upp númeri hjá UFO-samtökum og tilkynntum hvað við
sáum!“
„Hvað segirðu við þessu?“ sagði Larry og litli maðurinn birtist aftur á
skjánum.
„Ég held þær hafi rangt fyrir sér. Á þessu er eðlileg skýring, hvort sem það
er loftbelgur eða eitthvert náttúrufyrirbrigði, veðurmyndun eða slíkt sem við
þekkjum ekki ennþá. En munum gera í framtíðinni –“
Konurnar ráku aftur upp hlátrasköll og Larry horfði sposkur beint í
myndavélina. Netsíða MUFON-samtakanna rann yfir skjáinn meðan hann
kvaddi og svo kom yfirlit yfir veðrið í Dubai, Dakar, Istanbul, París.
***
Ég gaf stefnuljós hjá ör sem vísaði á „Kópavogur – Smárinn“, ók upp á hæð
og tók stefnuna til norðurs. Þegar ég fór að rýna í götuskiltin sá ég að snjóað