Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Page 56
56 TMM 2016 · 3
H va ð e r í s l e n s k u r r i t h ö f u n d u r ?
móðir en var sannfærð um að vera þeirri ábyrgð ekki vaxin. Það kemur
fram í bókinni að þau Örn heimsækja soninn í sveitinni reglulega en dóttirin
virðist alfarið hafa verið alin upp af fósturforeldrum sínum.
Helga fer að vinna í fiski og kynnist síldarævintýrinu á Siglufirði og á
Raufarhöfn. Það má segja að hún kynnist landinu og íbúum þess þegar hún
fer að vinna á eigin spýtur ásamt konum sem elda saman á kvöldin og deila
svefnherbergi. Þetta sjálfstæða líf sem stjórnast af fiskinum á við Helgu
og hún segir fjörlega frá starfinu, starfsháttunum og andanum á þessum
stöðum.
Það má segja að Íslandsdvöl Helgu sé nú með öðrum formerkjum en áður.
Hún kynnist listamönnum og situr með þeim á kaffihúsinu Mokka. Þar á
meðal er ljóðskáldið Dagur Sigurðarson sem hefur mikil áhrif á hana – og
hún nefnir sínu rétta nafni. Þau verða ástfangin og ferðast m.a. saman til
Sikileyjar. Dagur hvetur Helgu til að gefa út ljóðin sem hún hefur verið að
skrifa öll árin, þau búa textana undir prentun og gefa út sjálf. Ljóðin koma út
á þýsku undir heitinu „Ostdeutsch“ eða Austur-þýskt, og eru seld til þýsku-
mælandi vina og kunningja.
Helga segir um Dag:
Ef Dagur segir að Howl sé á undan sinni samtíð og það besta sem heimurinn hafi að
bjóða í dag, þá er það einnig fyrir mig það besta.
Ef Dagur segir að ég geti samið ljóð, þá get ég það líka.
Ef Dagur segir að það eigi að gefa út ljóðin mín, þá gef ég þau einfaldlega út.
Ef Dagur segir að frá og með deginum í dag séum við beatniks, af hverju ætti ég þá
ekki að vera beatnik, þó ég hefði ekki hugmynd um hvað það er.
Ef Dagur segir að fegurð Íslands blindi okkur og að við þurfum að fara út í heim,
þá förum við út í heim.
En það er líka Dagur sem stendur fyrir „Álfabrennu“ niðri við höfn, með
tímaritum, blöðum, pappírum, bréfum og uppköstum Helgu áður en þau
leggja út í heim. Allar skriftir Helgu voru henni annars heilagar, hvort
sem um var að ræða sendibréf eða eigin skriftir. Helga segir að aldrei hafi
bjarminn af skrifum hennar verið skærari, hvorki þegar fósturmóðir hennar
brenndi þeim í ofninum né síðar. En Helga elskaði Dag alla tíð, fram til
ótímabærs andláts hans árið 1994 eins og hún segir sjálf.
Dagur kynnir Helgu fyrir skáldkonunni Ástu Sigurðardóttur og þær
verða vinkonur. Ásta hafði þá gefið út smásagnasafn sitt en Helga segir frá
því að hún hafi einnig teiknað og verið búin að útbúa heilan spilastokk sem
henni tókst þó ekki að fá útgefanda fyrir.
Helga segir frá heimilishaldinu hjá Ástu, hún hafi verið ein með fjögur til
fimm börn og ekki komist í gegnum dagana nema með aðstoð brennivíns.
Hún hafi einnig útvegað sér lyf, sem Helga vissi aldrei hvaðan komu, einnig
pillur fyrir Helgu, ef blæðingar létu á sér standa. Helga flutti stundum í
heila viku inn til Ástu og hjálpaði henni að vinna úr mygluðum þvottahrúg-