Hugur - 01.01.2014, Blaðsíða 36
36 Jón Bragi Pálsson
einstaklingar eru skilgreindir sem neytendur en ekki persónur, er ein birtingar-
mynd vandans. Einnig má sjá að lífsmynstur margra einstaklinga fellur í fyr-
irfram ákveðið mót sem þjónar hagsmunum fyrirtækja, þar sem peningar eru
drifkrafturinn og stjórna hegðun fólks þegar það tekur ákvarðanir og mótar líf
sitt. Að loknu skyldunámi, þegar æskuárin eru liðin, sækir fólk í það nám sem
fyrirtækin kalla eftir vegna þess að þau bjóða upp á atvinnu sem gefur góðar
tekjur. Eftir námið fær fólk sér vinnu hjá fyrirtækjunum og þjónar þeim næstu
árin til að sjá fyrir fjölskyldu sinni; þægileg dagvinna og góð laun er það sem fólk
sækist eftir. Þegar fólk gengur inn í fyrirtækin er ekki litið á það sem persónur
heldur vinnuafl sem þiggur laun. Laununum er svo eytt í neyslu þar sem fólk er
skilgreint sem neytendur. Í nútímasamfélagi sjáum við sem sagt hvernig fólk lifir
stóran hluta lífs síns og komið er fram við það að miklu leyti sem viðfang, ann-
aðhvort sem vinnuafl eða neytanda en ekki persónu. Hið persónulega líf er því
á margan hátt undirokað í nútímanum. Ég tel að heimspeki Macmurrays geti
hjálpað okkur að skilja ópersónulegt hlutskipti okkar og finna leiðina út úr því.
Það er hins vegar verkefni frekari rannsókna að beita heimspeki Macmurrays
með markvissum hætti á vandamál nútímans.51
Viðauki - ævi og ferill Johns Macmurray
John Macmurrray fæddist 16. febúar 1891 í bænum Maxwelltown í Suðvestur-
Skotlandi. Foreldrar hans voru strangtrúaðir presbyteríanar en presbyteríanismi er
angi af kalvínisma. Faðir Johns, James Macmurray, hlaut enga formlega háskóla-
menntun en átti sér þann draum sem ungur maður að verða trúboði og breiða út
boðskap kristninnar í Kína. Ótryggt stjórnmálaástand í Kína olli því hins vegar
að hann náði aldrei að uppfylla þann draum sinn og vann hann mestan hluta
ævi sinnar sem vörugjaldafulltrúi. Móðir Johns Macmurray var heimavinnandi
húsmóðir sem stjórnaði heimilinu með harðri hendi og kenndi öllum börnum
sínum, strákum sem stelpum, heimilisstörfin, sem þótti óeðlilegt á þessum tíma í
Skotlandi. Heimili Macmurray-fjölskyldunnar var fremur strangt, agi trúarinnar
einkenndi heimilislíf hennar og gaf því kaldan blæ. Hún lifði eftir ströngum siða-
lögmálum og sunnudagar voru heilagir hvíldardagar þar sem faðir Johns þaggaði
niður í allri gleði barna sinna.52
Þegar John var átta ára fluttist fjölskylda hans til Aberdeen þar sem hann gekk
í barnaskóla og síðar í Robert’s Gordon College. Macmurray var metnaðarfullur
og agaður námsmaður. Menntaskólaár hans voru regluföst og fábreytt, hann gaf
51 Gunnar Ragnarson og Vilhjálmur Árnason veittu mér mikla hjálp við yfirferð og frágang á grein-
inni. Ég þakka þeim kærlega fyrir aðstoðina. Siðfræðistofnun er þakkað fyrir að styrkja þetta
verkefni. Gunnar vill láta þess getið að það hafi átt þátt í að endurvekja áhuga sinn á heimspeki
Macmurrays að Jónas Pálsson, fyrrverandi rektor Kennaraháskóla Íslands, bað hann fyrir nokkr-
um árum að líta á nýja þýðingu sína á fyrirlestrunum Reality and Freedom (í bókinni Freedom in
the Modern World) sem Macmurray flutti í BBC árið 1930 og Jónas þýddi og flutti í Ríkisútvarpinu
eftir að hann kom frá námi við Edinborgarháskóla. Gunnar og Jónas voru þar við nám samtímis
og sóttu báðir fyrirlestra í heimspeki hjá Macmurray.
52 Costello 2002: 19–26.
Hugur 2014-5.indd 36 19/01/2015 15:09:31