Hugur - 01.01.2014, Page 108
108 Salvör Nordal
hagnaði á hlutabréfamarkaði. Myndin gefur tilefni til að ræða sum þeirra álitaefna
sem vakna við eflingu heilastarfsemi.
Í fyrsta lagi eru lyf sem efla einstaklinga skjótvirk lausn. Ef til boða stæðu slík
lyf til að efla heila og taugakerfi, án aukaverkana, gætum við komist hjá streði við
að leysa flókin verkefni. Við einfaldlega tækjum lyfið og sæjum lausnina, jafnvel
skrif skáldsögu væri leikur einn. Í kvikmyndinni fær Eddie hæfileika sem engin
manneskja gæti fengið án verulegrar aðstoðar, samt sem áður beinir þetta sjón-
um okkar að þeirri staðreynd að við lítum talsvert ólíkt á árangur sem fæst með
aðstoð og árangur sem næst með eigin erfiði og einbeitingu. Í síðara tilfellinu
göngum við í gegnum ákveðið ferli sem kostar vinnu og aga. Hér má vísa til
þeirra sanninda að gildi hlutanna er ekki aðeins árangurinn sem næst heldur ekki
síður glíman við að komast á áfangastað. Þegar við leitum skjótvirkra lausna á
vandamálum okkar og verkefnum þá lítum við framhjá því hvað leiðin að mark-
miðinu er gefandi og þroskandi. Það er talsverður munur á íþróttamanni sem
leggur á sig stífar æfingar og þeim sem nær sama árangri vegna lyfjatöku. Í fyrra
tilfellinu reynir íþróttamaðurinn á þolmörk sín og hann hefur gert það án hjálpar
en í síðara tilfellinu er búið að færa þessi þolmörk út og hann hefur ekki unnið
fyrir árangrinum með sama hætti. Gjarnan er litið svo á að sá sem hefur fengið
slíka utanaðkomandi aðstoð til að auka möguleika sína í íþróttum eða á prófum
eigi ekki skilið að njóta uppskerunnar með sama hætti og sá sem sem hefur unnið
fyrir henni.25
Í öðru lagi sýnir kvikmyndin hvernig efling sögupersónunnar hefur smám sam-
an áhrif á samband hans við veruleikann, umhverfið og annað fólk. 26 Aðgang að
heiminum fáum við í gegnum skynjun okkar, en tengsl okkar við umheiminn
mótast af því hvernig við hugsum um hann. Breytingar á hugsun okkar og skynj-
un, ekki síst róttækar breytingar, breyta þessum tengslum. Lyfið sem Eddie tekur
hefur þau áhrif að heili hans verður eins og ofurtölva sem vinnur undrafljótt úr
öllum þeim upplýsingum sem hann fær. Skynjun hans á heiminum verður mjög
öflug og hröð sem veldur því að Eddie missir smám saman jarðsambandið og
tengslin við veruleikann. Þetta beinir sjónum að því hvernig efling eins þáttar eins
og heilastarfsemi raskar öðrum þáttum eða dregur úr þeim.
Í þriðja lagi fær Eddie sérstöðu og forskot á alla aðra því hann hefur öðlast
hæfileika sem enginn annar hefur. Þetta atriði tengist einu helsta áhyggjuefni
þeirra sem fjalla um taugaeflingu, en það er að hún verði til þess að auka enn
frekar misskiptingu milli fólks og þjóða. Í þessum efnum hefur verið bent á að
gera megi ráð fyrir að þeir sem standa vel félagslega og efnahagslega muni hafa
meiri möguleika á því að nýta sér eflingu en aðrir. Vissulega er ekki sjálfgefið að
taugaefling hljóti að verða dýr eða að hún muni fyrst og fremst standa fáum til
boða. Allt eins má ætla að hún geti orðið almannaeign líkt og menntun, og verði
því til að jafna stöðu fólks og auka jafnræði í samfélaginu og þar með velferð
borgaranna.27
25 Agar 2014: 18.
26 Zwart 2013.
27 Buchanan og Crawford 2014: 287.
Hugur 2014-5.indd 108 19/01/2015 15:09:35