Hugur - 01.01.2014, Page 233
Hugur | 26. ár, 2014 | s. 233–246
Arnar Pálsson
Tilviljun og tilgangur í lífi og eilífð
Um Tilviljun og nauðsyn eftir Jacques Monod
Þekking á hvaða náttúrulögmálum gæti hjálpað okkur að skilja eðli og eiginleika
mannsins sem tegundar? Eru það sömu lögmál og móta aðrar lífverur og vistkerfi
jarðar? Hafa örlög okkar verið ákveðin eða veltur velferð okkar á tilviljun einni?
Eru eiginleikar okkar og hegðan mótuð af erfðum, umhverfi eða tilviljun? Spurn-
ingar af þessu tagi brenna á fólki í dag, rétt eins og fyrir 2.500 og jafnvel 25.000
árum. Vísindin gera okkur kleift að varpa ljósi á svona spurningar, og þannig
bæði á eiginleika manna og krafta náttúrunnar. Erfðafræðin getur t.d. metið áhrif
erfða, umhverfis og tilviljunar á eiginleika lífvera, og hefur sýnt fram á flókið
samspil allra þessara þátta. Hún sýnir líka að áhrif erfða eru missterk á ólíka þætti,
frjósemi hefur lágt arfgengi en fingraför erfast auðveldlega.
Í þessari grein verður fjallað um stórar spurningar um vísindi og tilgang lífsins
í ljósi bókar Jacques Lucien Monod (1910–1976) Tilviljun og nauðsyn, rit um nátt-
úrulega heimspeki nútímalíffræði. Hún kom út árið 1969 í Frakklandi, en hérlendis
haustið 2012 í ljómandi góðri þýðingu Guðmundar Eggertssonar. Í henni fjallar
Monod um eðli lífsins, nýjar uppgötvanir í sameindalíffræði og hlutverk vísinda í
samfélaginu. Tilviljun og nauðsyn er stórmerkilegt verk fyrir fólk með áhuga á lífi,
heimspeki og stórum spurningum. En hvað felur hin nýja sameindakenning í sér
fyrir líffræði og veröld manna?
Monod og hin smásæja veröld
Veröld smásærra lífvera og innviðir frumunnar vöfðust fyrir náttúrufræðingum
nítjándu aldar og héldu margir þeirra að sjálfstæður lífskraftur, óháður lögmál-
um efna- og eðlisfræði, byggi í öllum lífverum eða að líf kviknaði af sjálfu sér.
Tilraunir Louis Pasteur (1822–1895) og nokkura annarra brautryðjenda örveru-
fræðinnar sýndu að líf væri komið af lífi og kváðu þar með niður hugmyndir um
Hugur 2014-5.indd 233 19/01/2015 15:09:41