Gríma - 01.09.1948, Page 20

Gríma - 01.09.1948, Page 20
18 ÞÁTTUR AF SÉRA ODDI Á MIKLABÆ [Gríma venjast. Guðríði fannst geigur nokkur grípa sig, og var hún þó kona einbeitt og vel huguð. Hugsaði hún sér nú að komast fram fyrir konu þessa, eða a. m. k. ná henni, og greikkaði Guðríður því sporið, en hvernig sem hún flýtti sér, var bilið milli hennar og stúlku þess- arar alltaf jafnt, og svo virtist sem stúlkan vildi ávallt bægja Guðríði til fjallsins. Leitaðist þá Guðríður við að ganga fjalls megin við hana, en þá var stúlkan óðara komin þar í veg fyrir hana. Gekk svo í þófi þessu milli Guðríðar og stúlkunnar alllanga hríð, og var sama hvoru megin Guðríður vildi ganga við hana, að stúlkan var alltaf komin þar í veg fyrir hana. Guðríður fjar- lægðist því sífellt meir hina réttu leið. Einnig var sama, hvort Guðríður gekk hægt eða hratt, að bilið milli þeirra var ávallt jafnlangt. Loksins þegar Guð- ríður var komin drjúgan spöl afleiðis og orðin lafmóð, tók hún það ráð að ganga beint áfram eins og hún sæi ekki stúlku þessa. Þá brá svo við, að stúlkan leystist upp sem í reyk og hvarf henni. Guðríður lýsti stúlku .þessari á þann veg, að hún hefði verið fremur lág vexti, en gildvaxin nokkuð; hefði verið með mikið svart eða dökkleitt hár, fremur óhirðulegt og úfið, en andlitsfall hennar sá Guðríður ekki. Hún var í rauðri peysu eða bol og gráleitu pilsi. Amma Guðríðar hafði verið barn á Miklabæ, þegar Solveig fyrirfór sér, og mundi hún Solveigu vel og hafði lýst henni í áheyrn Guðríðar. Stóð lýsing hennar heima við svip þann, er Guðríður sá þarna. Guðríður var, að sögn kunnugra, kona óskreytin og réttorð. Taldi hún vafalaust, að hún hefði þarna séð svip Solveigar. Þegar eg var að alast upp, á síðustu tugum 19. ald- arinnar, lifðu enn í munni alþýðunnar í Skagafirði sagnir um atburðina á Miklabæ, dauða Solveigar og

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.