Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Qupperneq 13
11
sknrlntssótt kvað talsvert, einkum á Norðurlandi og í Vestmannaeyj-
um. Rauðir hundnr voru og allútbreiddir um Suður- og Austurland.
Taugaveiki gætti meira en áður og reyndist einkum illkynjuð í Gríms-
neshéraði.
Dánartala ársins er lág, og má heita óbreytt 3 undanfarin
ár (1930: 11,6%C, 1929: 11,7%C). Ungbarna'dauðinn er nokkru ineiri
en síðustu ár, 49,4%0 (1930: 45,2%c, 1929: 43,0%c). Úr berkladauðan-
uw dregur verulega á þessu ári, og er hann ekki aðeins miklum mun
lægri en síðasta ár (var þá með hæsta móti), heldur neðan við með-
altal síðustu <3 ára. Dauði úr krabbameinum, sem var með lægsta
móti á síðasta ári, er nú aftur meiri og nálægt meðaltali undanfar-
inna ára. Eftir þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, hefir aðsókn að
læknum og eftirspurn eftir sjúkrahúsvist verið sízt meiri en næstu ár
undanfarin.
Læknar láta þessa getið:
HafnarJJ. Árið meðalár, að því er sóttarfar snertir.
Skipaskaga. Ekki verður annað sagt, en að heilsufar hafi verið
gott á þessu ári. Engar sóttir gengið yfir, sem teljandi séu.
Borgarfj. Heilbrigði var með betra móti, einkum 3 síðustu mánuði
ársins.
Olafsvíkur. Heilsufar var fremur gott i héraðinu.
Daln. Lítið um farsóttir á árinu, og engar skæðar.
Reykhóla. Heilsufar gott.
Flateyjar. Heilbrigði mátti heita góð allt árið.
Patreksfj. Heilsufar hefir ekki verið gott. Inflúensa og slæm kvef-
sótt hafa skipt árinu á milli sín, og í kjölfar þeirra hafa svo siglt
ýmsir kvillar.
Þingeyrar. Heilsufar yfirleitt gott í héraðinu og engar farsóttir
gengið.
Hóls. Sæmilegt heilsufar í mínu héraði.
Flateyrar. Heilsufar í héraðinu fádæma gott.
Hesteyrar. Heilsuíar var dágott á árinu. Þó gengu hér faraldrar af
kvefsótt, kvefpest og fleiri farsóttum, en engir svæsnir.
Hólmavikur. Heilsufar verður að teljast með bezta móti þetta ár.
Miðfj. Heilsufar frekar slæmt þetta ár, og á inflúensufaraldurinn
drýgstan þátt í því.
Sauðárkróks. Þetta ár hefir reynzt mjög kvillasamt; hefir kvefsótt
og inflúensa valdið mestu um það, en í spor inflúensunnar gekk
svæsin og' illkynjuð lungnabólga, svo að faraldur mátti teljast. Sýkt-
ust fleiri og dóu af hennar völdum en nokkurt ár áður, af þeim full-
um 20, sein ég hefi þjónað þessu héraði.
Hofsós. Heilsufar hefir verið i laklegu meðallagi þetta ár. Bezt var
það 3 fyrstu mánuði ársins, mátti þá heita g'ott. En lakast var það
vormánuðina og sumarmánuðina, vegna kvefsóttar, skarlatssóttar og
inflúensu.
Svarfdæla. Heilsufar mun betra en árið næst á undan; var þó all-
krankfellt með köflum, einkum fyrra misserið. Bráðar farsóttir voru
með tíðasta móti.
Akureyrar. Árið var kvillasamt.