Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Page 141
139
Phthisid. pulmon. seq.: 2 karlar 15 og 24 ára, 6 konur 17—40 ára,
alls 8. Þetta fólk ber greinilegar menjar lungnaberkla, en er a8 jafn-
aði sæmilega vinnufært og hefir ekki uppgang.
Pleuritid. seq.: 5 karlar 11—15 ára, 10 konur 15—50 ára, alls 15.
Þetta fólk hefir haft pleuritis, ber þess enn merki og finnur til þess,
en er þó vinnufært að meira eða rninna leyti.
Spondylitis: 2 stúlkur, 10 og 14 ára.
Auk þessa skoðaði ég töluvert margt l'ólk, sem vafi er á, hvort ekki
ætti að telja allt berklaveikt. Eg fyrir mitt leyti mundi gera það. Hafði
það þessa sjúkdóma, er hér greinir:
Bronchitis chronicn: 6 karlar 35—72 ára, 2 konur 62 og 72 ára, alls
8. Allt þetta fólk hefir haft pneumoníur hvað ofan í annað og hefir oft-
ast nær hósta og uppgang; í sputum hafa raunar ekki fundist TB., en
þær rannsóknir eru of fáar. Aftur á móti hefir borið meira eða minna
á berklum í fjölskyldunum.
Conjunctivitis phlyctenularis: 1 drengur 6 ára.
Hypertrophia tonsillarum: 3 drengir og 10 stúlkur, alls 13, á aldr-
inum 5—15 ára. Tel ég aðeins þau börn, sem sjúkdómurinn háir sýni-
lega, eru framfaralítil og þurfa chirurgiskrar læknishjálpar við.
Otit. med. suppur. chronica: 1 drengur 6 ára.
Engum, sem þetta les, mun blandast hugur um, að mikið sé um
berkla á Húsavík og líklega meira en í flestum öðrum sjávarþorpum
hér á landi. Þó er það enn þá órannsakað mál, og væri brýn þörf á, að
skoða sem víðast.
Að endingu þakka ég öllum þeim, sem í einu eða öðru hafa stutt
að því, að slcoðun þessi, þótt ófullkomin væri, komst í framkvæmd;
sérstaklega þó Birni Jósefssyni héraðslækni, sem studdi mig á alla
lund og hefir látið mér margar og nauðsynlegar upplýsingar í té.
28. nóv. 1932.