Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Qupperneq 97
95
Þistilff. Áfengisnautnar verður lítið vart. Viðskipti Áfengisverzlun-
arinnar munu hafa minnkað hér og voru aldrei mikil. En nú gengur
heimabruggunaraldan yfir landið, hvenær sem hún skellur hér yfir
fyrir alvöru. Ekki er þess að dyljast, að gert hafi hún vart við sig í
þessu héraði í fyrra. En þá hélt ég, að tekizt hefði að kveða drauginn
niður með aðstoð góðra manna.
Vopnaff. Áfengis ekki neytt hér svo teljandi sé. Spánarvín sjást hér
ekki, og smyglun lir skipum sáralítil. Eitthvað hefir verið bruggað hér
af svokölluðum „landa“ en í injög smáum stíl. Bruggarinn var kærð-
ur og játaði víst að hafa átt eitthvað við sprittbruggun.
Hróarstungu. Ekki er áfengisnautn svo orð sé á gerandi, þó mun öl
bruggað og drukkið í sumum hreppum, og' verða menn kenndir af.
Kaffi mikið notað. Tóbaksnautn tiltölulega lítil, borið saman við það,
sem ég þekki annarsstaðar.
Regðarff. Vínnautn allmikil. Heimabruggun töluverð, bæði á öli og
„landa“.
Berufí. Áfengisnautn fer frekar í vöxt, að því er virðist.
Síðu. Vinnautn er hér lítil; bruggun ekki breiðzt iit ennþá.
Mýrdals. Áfengisnautn hefir aukizt til muna að undanförnu, og er
það nær eingöngu heimabruggað áfengi, sem drukkið er.
Vestmannaeijja. Drykkjuskapur með minnsta móti, sjálfsagt vegna
getuleysis.
Rangár. Áfengisnautn töluverð, sennilega mest drukkið heimabrugg.
Eijrarbakka. Drykkjuskapur er lítill sem enginn meðal héraðsbúa,
og er það sjálfsagt að þakka aðflutningsbanninu og af því leiðandi
dýrtíð á öllu áfengi.
Grímsnes. Vínnautn lítil. Tóbaks- og kaffinautn nokkur.
Keflavikur. Áfengisnautn er töluverð og sérstaklega áberandi á
skemmtunum. Tóbaksnautn er töluverð í kauptúnunum, sérstaklega
sígarettur.
7. Meðferð ungbarna.
Ljósmæður geta þess í skýrslum sínum (sbr. töflu X) hvernig 2446
börn af 2538, sem skýrslurnar ná til, voru nærð eftir fæðinguna. Eru
hundraðstölur sem hér segir (tölur síðastliðins árs í svigum):
Brjóst fengu ............... 88,5% (87,6%)
Brjóst og pela fengu ....... 2,5— ( 3,9—)
Pela fengu ................. 9,0— ( 8,5—)
í Beykjavík lita tölurnar þannig út:
Brjóst fengu ............... 96,5% (97,2%)
Brjóst og pela fengu........ 0,2— ( 0,6—)
Pela fengu ................. 3,3— ( 2,2—)
Læknar láta þessa getið:
Hafnarff. Meðferð ungbarna yfirleitt góð.
Skipaskaga. Meðferð á ungbörnum er sem fyrr í góðu lagi. Allar
mæður, sem alið hafa börn á þessu ári, hafa haft börn sin á brjósti,
nema ein. Hirðing og klæðnaður ungbarna einnig í lagi. Lýsi er börn-
um almennt gefið hér í kauptúninu. Mjólk hefir verið nægileg, enda