Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Qupperneq 45
43
til þess að hallmæla mínum ágæta collega í Svarfaðardal, heldur til
þess að sýna, að það er ekki svo auðvelt að átta sig á svona tilfellum
í skjótri svipan, við eina athugun eða svo. Ég hefi nú grun um, að
þetta ár hafi þessi fjandi verið hér á ferð. Talsvert hefir orðið vart við
torticollis, án skiljanlegra orsaka, en einhversstaðar hefi ég heyrt
þess getið, að þetta gæti verið vottur um enceph. leth. Þó er nú ekki svo,
að ég hafi þorað að telja þetta þannig, af því að ég hefi ekki fundið önn-
ur einkenni, sem gætu stutt þessa diagnosis, en vil hinsvegar ekki láta
þess ógetið, því að þetta virtisí faraldur, einkum í september, en í
ág'úst var hér mest af inflúensu.
Síðu. Hálsrígur, sem hagaði sér eins og smitandi sjúkdómur, tók 4
menn á sama bæ í Fljótshverfi. Með því að ráðfæra mig við „Nauveau
Treté de Medicine“, komst ég að þeirri niðurstöðu, að þetta væri ein
af vægari tegundum encephalit. epidem. lethargica. Um
þetta hefi ég skrifað nánar og sent Læknablaðinu til birtingar.
18. Heimakoma (erysipelas).
Töflur II, III og IV, 18.
Sjúklingafiöldi 1922—1931:
1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929
Sjúkl. 197 140 83 96 102 93 112 43
Dánir 8 4 „ „ 1 „ 3 1
1930 1931
34 31
Læknar láta þessa getið:
Hofsós. Kemur hér fyrir, nokkur tilfelli árlega.
Svarfdæla. Hefir jafnan verið fátið hér að undanförnu. Ekki verður
heldur talið, að hún væri tíð þetta ár, aðeins 4 sjúklingar, en fleira er
það þó en venja er til. Öll tilfellin komu fyrir á síðasta ársfjórðungn-
um, og öll voru þau i Dalvík og í Svarfaðardal, en ekki varð þó rakið
smitunarsamband milli neinna af þeim.
Húsavíkur. Venju fremur fá tilfelli þetta ár. Ekki finnst mér það rétt
að sleppa þessum sjúkdómi af skrám, því að hann er býsna oft alvar-
legur og oft ekki færri tilfelli af honum en t. d. pneumonia crouposa,
og segja má um báða, að virus sé ubiquiter, en ei að síður geta komið
upp faraldrar. Séð hefi ég mörg tilfelli á sama heimili af erysipelas
eins og af pn. croup.
Reyðarfi. 2 tilfelli væg, hvorttveggja konur, er fengið höfðu veik-
ina áður.
19. Þrimlasótt (erythema nodosum).
Töflur II, III og IV, 19.
Sjúklingafiöldi 1929—1931: 1929 1930 1931
Sjúkl.................................................. 27 25 28'
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfi. Aðeins 1 tilfelli, annars tíður kvilli hér.
Húsavíkur. 1 þessu héraði hefir mér reynzt svo, að hver einasti sjúk-
lingur, sem fengið hefir eryth. nod., hafi eftir stuttan tíma sýnt tb. á