Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Síða 72
70
Vopnafl. Hjálpaði aðeins 2 konum á þessu ári. Önnur konan með
þrönga grind, og hafði áður þurft að taka barn hennar með töng, svo
varð og í þetta skipti. Hjá hinni konunni þx-ýsti ég lit fylgju með hendi.
Hróarstungu. Mín 1 sinni vitjað til konu, og varð fæðing eðlileg eftir
að konan hafði verið losuð við þvag og saur. Ljósmæðrum hættir við að
vanrækja blöðrutæmingu, ef konan lcveinkar sér.
Seyðisfl. Læknis var vitjað 5 sinnum til sængurkvenna; heilsaðist
þeim öllum vel og börnunum líka. Hefi ég notað við hríðaleysi thymo-
physin eins og undanfarandi ár og reynzt það vel. Er alveg hættur að
nota pituitrin, — finnst verkun þess oft lítil eða engin.
Regðarfl. Var sóttur 11 sinnum til sængurkvenna, tók tvisvar börn
með verkfærum. Fyrra skiptið hjá 20 ára frumbyrju vegna sec. sótt-
leysis. I seinna skiptið hjá konu 40 ára, hafði fætt áður fyrir 12 ár-
um. Var þar um grindarþx-engsli að ræða. Þrátt fyrir impressio og
margitrekaða töng, tókst mér ekki að ná barninu lifandi, — varð að
gera perforatio capitis. Um afdrif konunnar sjá barnsfararsótt.
Fáskrúðsfl. Einu sinni á árinu var mín vitjað til sængurkonu. Tví-
burafæðing. Fyrra barnið fætt fyrir ca. 2 klukkutímum. Ég hafði þá
eczema á höndum og lét því yfirsetukonuna snúa fóstrinu, sem lá
þversum — og draga það fram, en svæfði sjálfur konuna. Barnið fædd-
ist andvana, og tókst ekki að lífga það.
Mijrdals. Til sængurkvenna hefir min verið vitjað 9 sinnum. Ein
þeirra hafði þegar fætt, er ég kom til hennar. Til annarar var ég sóttur
vegna gangleysis þrátt fyrir harða sótt, að sögn yfirsetukonu. Þegar
ég kom til konunnar, sem var primipara, virtist hún hafa mjög harðar
og reglulegar hríðir, en samdrættir fundust engir í leginu og engin út-
víkkun. Konan taldi hinn rétta fæðingartíma kominn, en eftir því sem
henni sagðist frá, reiknaðist mér, að um mánaðartími væri eftir af með-
göngutímanum, og stóð það heima við legstærðina. Þegar ég hafði leitt
henni þetta fyrir sjónir, brá svo við, að allt datt í dúnalogn, og tæpum
5 vikum seinna ól hún svo barn sitt með eðlilegum hætti.
Rangár. Var 10 sinnum vitjað til kvenna í barnsnauð. Sóttleysi oft-
ast tilefnið. Ein andlitsfæðing: barnið tekið með töng, kom liðið. Ekki
nærri fullburða.
V. Slysfarir.
Af slysförum hafa látizt á árinu 63 þar af 6 sjálfsmorð (1930; 94
og 7, 1929: 69 og 7).
Um slys láta læknar þessa getið:
Hafnarfl. Algengustu sjúkdómar eru slys, venjulega smá.
Skipaskaga. Fract. claviculae 1, costae 3, cruris 1, humeri 1, manus 1,
radii 3, Luxatio humeri 1.
Borgarfl. Slys alls 54, flest smávægileg. Fract. radii 1, claviculae 2,
humeri 3. Luxatio humeri 1.
Ólafsvíkur. Fract. malleol. intern. 1, oss. metacarpi 1.
Dala. Vulnus incis. manus 1. Vuln. incis faciei 1. Fract. radii typ. 1*