Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Blaðsíða 51
49
Flateyrnr. Kynsjúkdómar hafa gert mikið vart við sig á árinu. Hafa
verið skrásettir 1G lekandasjúklingar. Langflestir þeirra voru frá Suð-
ureyri við Súgandafjörð. Mér vitanlega hefir ekkert horið þar á lek-
anda nokkur undanfarin ár, en um eða eftir áramótin 1930—31 mun
hann hafa flutzt hingað frá ísafirði og náð á skömmum tíma mikilli
úthreiðslu. Þegar inflúensubannið var afstaðið, tók ég mér ferð á
hendur þangað og lét kalla fyrir mig alla sýkta og yfirheyrði þá vand-
lega einu sinni eða oftar, þangað til saman bar framburði þeirra. Þá
kallaði ég fyrir mig nokkuð af öðru fólki, er í slarki hafði staðið og
rannsakaði hvort það væri smitað. Við yfirheyrslurnar kom í ljós, að
mesti ólifnaðurinn var samtímis eða að afloknum danssamkomum í
kauptúninu. Þær lét ég því banna fyrst um sinn. Varð allt þetta til þess
að halda fólki í skefjum heima fyrir um tíma og, að því er virðist,
drepa niður veikina. Upp úr jólaböllunum mun þó aftur hafa farið
að lifna yfir fólkinu, því að eftir áramótin hefir litilsháttar borið á
lekanda þar aftur. Er heldur tæplega að vænta, að lekandalaust verði
í jafnfjörugu plássi, því að unga fólkið úr Súgandafirði dvelur löng-
um á ísafirði og í Reykjavík, og flytur l'rá bæjum þessum neista að
tundrinu heima fyrir.
Hóls. Lekandi kom aðeins fyrir i einu tilfelli á árinu, og er það með
minnsta móti, þó lítið hafi verið um þá veiki áður. Veikin er yfirleitt
eigi viðloðandi í héraðinu, heldur aðflutt frá ísafirði eða Reykjavík.
Miðff. 4 tilfelli þetta ár, þar af 1 blenorrhoea neonatorum.
Hofsós. Enginn talinn á mánaðaskrám með kynsjúkdóma. Þess má
þó geta, að 1 sjúklingur með lekanda var hér dálítinn tíma undir
læknishendi. Annars var hann smitaður á Siglufirði og hafði aðallega
notið læknishjálpar þar. Segja má, að yfirleitt síeppum við hér vel við
kynsjúkdóma, og má það gott heita svo nærri Siglufirði, einkum þó,
þegar tekið er tillit til þess, hve margir héðan stunda þar atvinnu á
sumrum.
Húsavíkur. Hér hefir yfirleitt verið mjög litið um m. veneris þessi
13 ár, sem ég hefi verið hér, og þá flest útlendingar á salt-, kola- og
fiskiskipum. Landlægir í héraðinu virðast þeir ekki.
Fljótsdals. Mér vitanlega aldrei verið kynsjúkdómar í héraðinu.
Hróarstungu. Kynsjúkdóma hefi ég ekki séð síðan ég kom í héraðið.
Seyðisff. 3 tilfelli eru skráð af gonorrhoe. Voru það útlendir sjómenn.
Reyðarff. Gonnorrhoe 3 tilfelli, 2 utanhéraðs (sjómenn) og ein lcona
innanhéraðs, er smitaðist af utanhéraðsmanni.
Fáskrúðsff. Lekanda sótti einn karlmaður til Reykjavíkur. Sá kvilli
er annars frekar sjaldgæfur hér, og, sem hetur fer, ekki landlægur enn.
Síðu. Kynsjúkdóma hefir ekki orðið vart í héraðinu enn sem kom-
ið er.
Mýrdals. Einn maður kom með gonorrhoe frá Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyja. Skráðir 13 sjúklingar með gonorrhoe. Er það með
langflesta móti.
Rangár. Einn karlmaður leitaði til mín með gonorrhoe. Hafði smit-
azt af stúlku frá Reykjavík.
Keflavíkur. Lekandasjúklingar voru 3 skráðir, allir innlendir. Fund-
ust þeir á vertíð.
4