Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Blaðsíða 49
47
25. Hlaupabóla (varicellæ).
Sjúklingafjöldi 1922—1931:
1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931
Sjúkl. 157 132 163 153 156 143 198 157 101 184
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Hlaupabólu varð ég var í nokkrum skólabörnum í febr.
og marz; var mjög væg.
Húsavíkur. Eitthvað leyndardómsfullt við smitun þessa sjúkdóms.
Rangár. Varð var við 2 sjúklinga. Veikin kom fyrst í dreng nýkom-
inn hingað í héraðið sunnan úr Keflavík; barst af honuin í annan
mann á heimilinu.
Auk framangreindra sótta geta læknar um þessar farsóttir:
Angina Plaut-Vincent: Rvík 2.
Conjunctivitis acuta epidemica: Síðu 4.
Erythema multiforme: Rvík 1.
Herpes zoster: Rvík 1, Síðu 1, Rangár 1.
Meningitis cerebrospinalis epidemica: Fáskrúðsfj. 1. Á dánarskrám
eru 2 taldir dauðir úr þessum sjúkdómi, en enn sem fyrr mun sjúk-
dómsgreiningin hvergi nærri örugg.
Pemphigus neonatorum: Húsavíkur 2.
Septicopyæmia: 9 eru taldir dauðir úr graftarsótí á þessu ári, en að
öðru leyti er ekki á hana minnst.
Tetanus: Mýrdals 1. Dáinn 1.
Læknar láta þessa getið:
Húsavikur. Pemphigus neonatorum: 2 tilfelli, væg. Sjúk-
dómurinn sjaldgæfur hér. Bæði tilfellin á fullhurða, hraustum börn-
um í ágætum húsakynnum, og allt hreinlæti í allra bezta lagi.
Síðu. Conjunctivitis acuta epidemica. 4. Það er sjúkdóm-
ur, sem ekki hefir áður gert vart við sig í þessu héraði. Fyrsti sjúklingur
minn var kona, 39 ára í Ásum í Skaftártungu. Ég skoðaði hana þar,
í Ásum, 11. júlí; þá fyrir fáum dögum hafði bólga hlaupið skyndi-
lega í annað auga hennar, án þess að hún vissi orsök til þess. Þessu
fylgdi lítilsháttar þreytuverkur og stirðleiki. Enginn annar hafði feng-
ið þesskonar augnveiki á þessu heimili eða i nágrenni, svo vitað væri.
Þegar ég skoðaði augað, var mikið oedem í augnalokum og roði í
conjunctiva, bæði í hvörmunum og á bulbus. En hvernig sem leitað var,
fannst ekkert, sem orsakað gæti ertingu eða benti til þess, að um
meiðsli eða mekaniska orsök gæti verið að ræða.
28. júlí kom til mín ungur bóndi úr Landbroti. Hann var með bæði
augu bólgin, og höfðu 2 aðrir á heimili hans veikzt á sama hátt. Fyrst
kom það í unga stúlku, sem í byrjun mánaðarins kom heim til sín úr
Reykjavík, og nokkru seinna veiktust, um líkt leyti, bóndinn sjálfur
og sonur hans, 9 ára. Ekki gat ég fengið upplýsingar um það, hve langt
leið frá því, að stúlkan kom heim og þar til að hún veiktist. Ekki heldur
hvað langur tími leið, þangað til feðgarnir veiktust. En þegar bóndinn
kom til mín, hafði hann verið veikur um það vikutima. Var það fyrst
í öðru auganu en var nýbyrjað í hinu líka, og herti það á honum að