Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Blaðsíða 103
101
sveitunum eru þinghús hreppanna notuð sem samkomuhús. Kirkj-
ur eru flestar ofnlausar og kaldar á vetrum. Ræsting á kirkjum í
sæmilegu lagi en ábótavant í samkomuhúsum.
Dn'a. Með hyggingu sundlaugarhússins á Laugum í Hvammssveit
er jafnframt bætt úr vöntun samkomuhúss í sveitinni. Auk þessa eru
aðeins 4 samkomuhús í héraðinu (9 hreppum) og þau ófullkomin,
nema eitt, sem er dágott. Sumar af kirkjunum eru skárstu samkomu-
húsin, og ef sætin væru höfð laus í þeim og ofnar settir þar sem þá
vantar, mætti nota þær til allskonar mannfunda og skemmtana.
13. Skoðunargerðir eftir kröfu lögreglustjóra.
Þeirra er ekki getið á árinu, og hafa þó efalaust einhverjar farið
fram, a. m. k. í Rvík.
14. Störf heilbrigðisnefnda.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Heilbrigðisnefndin hefir gert sér far um að lagfæra
ýmislegt, er að þrifnaði lýtur. Enn hefir hreppsnefndin ekki tekið
að sér hreinsun salerna og' sorpgryfja, sem hún þó hefir haft góð orð
um.
Ólafsvíkur. 2 heilbrigðisuefndir eru í héraðinu, en lítið ber á störf-
um þeirra.
15. Bólusetningar.
Frumbólusett 3169; bólan kom lit á 2028 eða 64%
Endurbólusett 2763; — — 1516 — 55—
Skýrslur vantar úr Reykjarfj., Þistilfj., Norðfj. og Seyðisfj. í Reyk-
hóla og Siglufj. fórst bólusetning með öllu fyrir.
í Rvík er útkoman þessi:
Frumbólnsett 814; bólan kom út á 310 eða 38%
Endurbólusett 497; — — —- - 460 — 93—
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Bólusetning illa sótt í ár. Mörg endurbólusetningar-
börn farin burt úr héraðinu, ýmist i sveit eða til dvalar annarsstaðar.
Borgarfj. Bóluefnið mun hafa verið í sterkara lagi í þetta sinn, því
að mörg börn fengu háan hita eftir bólusetninguna, um og yfir 40°,
stundum dögum saman, og heljarstórar bólur með miklum þrota í
kring.
Dala. Bólusetningar fóru fram í 5 af 8 umdæmum á árinu. í 3 af um-
dæmunum féll bólusetning niður vegna þess að bóluefni, sem þeim
var ætlað, glataðist í sendingu.
Flateyjar. Bólusetning fór fram í öllu héraðinu á árinu. Hafði ekki
farið fram reglulega síðustu árin.
Patreksfj. Bólusetning fór fram í öllum umdæmum héraðsins í júní
og júlí.
ísafj. Bólusetning fór nú fram í öllu héraðinu, og var árangur góð-