Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Side 80
78
VII. Ýms heilbrigðismál.
1. Heilbrigðislöggjöf 1931.
Á árinu voru sett þessi lög, sem til heilbrigðislöggjafar geta talizt:
1. Lög nr. 28, 8. sept. 1931, um sjóveitu í Vestmannaeyjum.
2. Lög nr. 57, 8. sept. 1931, um breyting á lögum nr. 73, 7. maí 1928
Slysatryggingalögj. Breytingin síðan felld inn í Slysatryggingalögin
og þau gefin út að nýju sem lög nr. 72, 8. sept. 1931 um slysatrygg-
ingar.
3. Auglýsing nr. 74, 21. jan. 1931 um samning milli íslands og Noregs
um gagnkvæmi við slysabætur.
Þessar reglugerðir varðandi heilbrigðismál voru gefnar út af stjórn-
arráðinu:
1. Reglugerð um sölu áfengis til lækninga (birt fyrst á þessu ári en
dags. 30. des. 1930).
2. Reglugerð um sölu áfengis til lækninga (birt fyrst á þessu ári en
dags. 31. des. 1930).
3. Reglugerð fyrir Skagafjarðarsýslu um hreinsun hunda af bandorm-
um og varnir gegn sullaveiki (9. apríl).
4. Reglugerð um hundahald í ísafjarðarkaupstað (9. júní).
5. Reglugerð um sölu og veitingar vína þeirra, er ræðir um í lögum
nr. 3, frá 1923 (6. nóv.).
6. Reglugerð um Slysatryggingar ríkisins, 28. des.
7. Reglugerð um áhættuflokkun og ákvörðun iðgjalda fyrir slysatrygg-
ingar (28. des.).
Konungur staðfesti skipulagsskrár fyrir eftirtalda sjóði, sem ætlaðir
eru til heilbrigðisnota:
1. Styrktarsjóður Guðlaugar Hjálmarsdóttur fyrir heilsuveilar þjón-
ustukonur (21. jan.).
2. Minningarsjóður Helga læknis Guðmundssonar, Siglufirði, til styrkt-
ar fátækum sjúklingum í sjúkrahúsi Siglufjarðar (16. febr.).
3. Barnavinasjóður Hannesar Hafliðasonar til styrktar Barnasumar-
dvalarfélags Oddfellowa til að halda uppi sumardvölum fyrir veikl-
uð börn.
Til lælcnaskipunar og heilbrigðismála var eytt á árinu úr ríkissjóði
skv. landsreikningi kr. 627153,00 (áætlað hafði verið kr. 585515,00) og
til almennrar styrktarstarfsemi kr. 917420,49 (áætlað kr. 997350,00)
eða samtals kr. 1544573,49 (áætlað kr. 1582865,00).
Á fjárlögum fyrir næsta ár voru þessir sömu liðir áætlaðir kr.
618571,00 + 868400,00 = 1486971,00.
2. Heilbrigðisstarfsmenn.
Tafla I.
Á læknaskipun urðu eftirfarandi breytingar:
Gísli Pálsson settur 5. febr. til þess að þjóna Reyðarfjarðarhéraði.
Einar Ástráðsson skipaður 11. apríl héraðslæknir í Reyðarfjarðarhér-