Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Blaðsíða 100
98
byggingu og fékk á árinu 1930 sundkennara í 2 vikur til að kenna
sund í Iauginni, og sóttu allmargir unglingar og fullorðnir þetta sund-
námskeið.
Hróarstungu. Íþróttalíf að kalla ekkert.
Reyðarff. Sund nokkuð stundað i sjó að sumrinu.
Síðu. Sundnámskeið fyrir drengi eru í öllum hreppum héraðsins að
vorinu.
Vestmannaegja. Útileikar eru hér allmikið iðkaðir á sumrum,
einkum knattleikar og sund.
Keflavíkur. Iþróttalíf heldur að færast í aukana, leikfimi og sund.
9. Alþýðufræðsla.
Læknar láta þessa getið:
Hólmavíkur. Héraðslæknir flutti erindi á Hólmavík um smitun og
sótthræðslu.
Hofsós. í sambandi við skólaskoðanir voru flutt stutt erindi um
berklaveiki, þar sem því varð við komið. Á Sauðárkróki var í sam-
bandi við sýslufund flutt nokkuð ítarlegt erindi um sama efni. Á Hól-
um í Hjaltadal var flutt erindi um matarhæfi, einkum kálmeti, og nýj-
ustu vitaminrannsóknir.
Svarfdæla. Fræðsla um ýms heilbrigðismál fór fram í sambandi
við skólaeftirlitið á sömu skólastöðum og að undanförnu.
Siðu. Ég hélt í vetur erindi á samkomu hér í Hörglandshreppi um
Gersonsdiæt og bætiefni.
Vestmannaegja. í barnaskólanum er mjög brýnt fvrir börnum
nauðsyn þrifnaðar og hreinlætis til heilsuverndar.
10. Skólaeftirlit.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfj. Skólaskoðun fer fram lögum samkvæmt. Börnin vegin og
mæld, hlustuð, ef grunsöm eru, skoðaðar tennur, hálskirtlar, hryggur,
húð, sjón og heyrn.
Skipaskaga. Skólaskoðun hér á Akranesi fór fram frá 29. sept. til
1. okt. Börnin voru öll mæld og vegin nakin. Heilsufarsblöð voru not-
uð í öllum bekkjum nema 4. bekk. Á öllum börnunum var gerð Pir-
quetprófun, með aðstoð Ríkharðs læknis Kristmundssonar. Útkom-
an varð, að 27,7% voru positiv. Ég hefi haft næstum daglegt eftirlit
með heilsufari barnanna, og hefir það reynzt gott til þessa. Sú ný-
breytni var upp tekin, að kennarar skólans héldu veikindaskrá fyrir
hvern bekk, svo hægt væri að fylgjast vel með, hver börn væru veru-
lega veik. Nákvæm skoðun á börnunum fer fram á haustin og í miðjum
janúar. Gólfin í öllum kennslustofum eru olíuborin.
í Innri-Akraneshreppsfræðsluhéraði skoðaði ég 12. okt. Börnin,
sem skoðuð voru, voru 15. Þau voru öll mæld, en vigt var engin til á
staðnum. Pirquetsprófun var gerð á þeim öllum; voru þau öil nega-
tiv, nema eitt vafasamt. í Leirár- og Melafræðsluhéraði skoðaði ég 28.
október, í Strandarfræðsluhéraði 30. okt.