Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Blaðsíða 18
16
3. Barnaveiki (diphteria).
Töflur II, III og IV, 3.
Sjúklingafiöldi 1922—1931 :
1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931
Sjúkl. 24(5 165 142 56 71 26 17 6 9 14
Ðánir 24 7 8 5 2 2 3 2 1 1
Barnaveiki er getið í 6 héruðum, en sjúkdómsgreiningin víða vafa-
söm, og má landið enn heita barnaveikislaust.
Læknar láta þessa getið:
Ruík. Að vísu eru skráðir 2 sjúkl. með barnaveiki, en mér vitan-
lega hefir diagnosis aldrei verið bakteriologiskt sönnuð og verður því
ekki talin ábyggileg.
Siglufi. 4 tilfelli væg; veit ekki hvaðan veikin hefir borizt.
Húsavíkur. í þau 13 ár, sem ég hefi verið hér, hefir varla sést barna-
veiki og alls eklci þetta ár.
Þistilfi. Difteritis kom upp í héraðinu í júní. Fyrst veiktist stúlka,
sem kom úr Rvík, nýlega komin. En rétt um leið kom veikin upp
á öðrum bæ, og varð ekki grafið upp, að neinn samgangur hefði ver-
ið milli heimilanna. Stúlkan, sem fyrst veiktist og piltur á hinum
bænum fengu typiskar lamanir, sem bötnuðu smátt og smátt. Difteri-
serum fengu sjúklingarnir allir.
Rangár. Vart varð við einn sjúkling með harnaveiki; var það stúlka,
rúmlega tvítug, frá Reykjavík; ætlaði hún að dvelja sér til heilsubótar
að Bergþórshvoli. Lagðist á öðrum degi eftir að þangað kom. Ég kom
til hennar á 3ja sjúkdómsdegi, og var þá um greinilega barnaveiki að
ræða. Gaf serum antidipht. Stúlkan dó snögglega meðan ég var þar
staddur úr paralysis cordis. Ég taldi á skýrslum stúlkuna dána úr
barnaveiki, þótt veikin virtist ekki það heiftug, að til dauða mundi
leiða, hefði sjúklingurinn ekki haft hjartasjúkdóm fyrir. Seinna
skýrðu aðstandendur hennar mér frá því, að hún hefði undanfarið
legið á Landakotsspítala á annað ár vegna liðagigtar og m. cordis.
Annars ekkert orðið vart við barnaveiki 2—3 síðustu árin.
Eyrarbakka. Ekkert tilfelli sá ég, sem gæfi grun um diphteria.
Eru nú allmörg ár liðin síðan ég hefi séð illkynjaða hálsbólgu eða
barnaveiki, s.vo að ég sé viss um, en fyrir hefir komið, að ég hafi not-
að barnaveikiserum af varkárni.
Grímsnes. Einn sjúklingur skráður í janúar (croup), þriggja ára
barn. Vaknar að næturlagi með stridor, er ágerist. Hafði það verið dálít-
ið kvefað. Bjóst ég fremur við því, að hér væri að ræða um pseudocroup.
Lítið sást í hálsi, nokkur roði, ógreinilegt og ekkert á því að byggja.
Kirtlar lítið eitt bólgnir undir kjálkabörðum. Sótthiti lítill, náði ekki
38°. Beið ég þarna nokkurn tíma til þess að athuga barnið nánar.
Stridor ágerðist, köldum svita sló út um barnið; það var fölt og yfir
höfuð slíkur veikindablær yfir því, að ég þorði ekki annað en taka
þetta sem væri það alvarlegs eðlis. Sprautaði 16000 i. e. sem croup
væri. Barnið hresstist. Diphteritis er ennfremur skráð í tveimur börn-
um i marzmán. Voru það einnig vafatilfelli. Börnin höfðu verið lasin
í ca. y2 mánuð eða meira. Var þetta álitin hálsbólga. Ekki hafði verið