Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Qupperneq 54
52
prófuðum barnaskólabörnum höfðu 61 Pirquet -{-. Til enn frekari
sönnunar má benda á, að þessir 103 sjúklingar eru flestir sinn af
hverju heimili, og loks má geta þess, að ég hefi séð fjölda af scrophu-
lösum börnum og th.-grunsömum, sem ég hefi ekki skráð í berklabók.
Sauðárkróks. 1 barn dó úr berklum í heila, og var þó engin berkla-
veiki á heimili þess. Flestar kýr voru rannsakaðar á Sauðárkróki, og
reyndist engin berklaveik.
Akureyrar. Heilsuástand hinna 216 sjúklinga, sem skráðir voru
berklaveikir í héraðinu, var þannig, eftir því sem við læknarnir viss-
um bezt:
Allvel frískir og vinnufærir ............... 86
Veilir, en sumir nokkuð vinnufærir.......... 99
Rúmlægir og dauðvona ....................... 31
Samtals 216
Eftir heimilisfangi skiptust sjúklingarnir þannig:
í Akureyrarkaupstað .............. 99 sjúkl. (sjúkrah. og Kristnesh.)
- Hrafnagilshreppi .............. 68 —
- Glæsibæjarhreppi .............. 17 —
- Saurbæjarhreppi ............... 15 —
- Öngulstaðahreppi ............... 9 —
- Skriðuhreppi ................... 3 —
- Svalbarðshreppi ................ 3 —
- Öxnadalshreppi ................. 1 —
- Illugastaðasókn (Hálshreppi) . . 1 —
Samtals 216 sjúkl.
Húsavíkur. Á þessu ári hefi ég skrásett fleiri með berkla en áður,
og stafar það mest af því, að nú hefi ég tekið upp þá reglu, að telia
pleurita með tb. sjúklingum, því nær allir þessir sjúklingar — lík-
lega allir — eru tuberculösir. Hinsvegar virðist faraldur sá, sem hér
hefir gengið yfir, vera í talsverðri rénun. Meningitis og eryth. nod.
fækkar. Hvort þessi faraldur hefir stafað frá einhverjum, sem virzt
hefir heilbrigður og gengið hér um eða ekki, er inér hulið.
Öxarfj. Það lítur út fyrir, að fyrr hafi víða dvalið á heimilum fólk,
er smitaði öll börnin. Þau smátínast upp eftir aldrinum á skrárnar.
Hamingjan má vita, hvort svo er ekki enn. Víst er, að af hælunum
verð ég að taka inn á barnaheimili fólk með opna berkla — auk þess
heima fyrir, sem fram hjá mér kann að fara. Héraðið er allt of stórt
til þess, að ég geti vakað yfir fólkinu eins og þvrfti, auk annars, sem
vera má að mig skorti.
Fljótsdals. Berklasjúklingum fer heldur fjölgandi.
Hróarstungu. Á berklaveiki ber nokkuð, en ekki þykist ég geta
dæmt um, hvort hún fer vaxandi eða rénandi.
Rangár. Mér finnst bera minna á berklaveiki en þegar ég kom fyrst
i héraðið; sérstaklega virðast mér tilfellin vægari, og batahorfur
því betri.