Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Síða 99
97
ingin er steinhús, og í j)ví stór sundlaug, björt og há undir loft, 2 klef-
ar með steypiböðum, 2 klefar tií fataskipta, svefnská’i, horðstofa, eld-
hús, 2 vatnssalerni og svefnherbergi fyrir stúlkur, allt hitað upp með
hveravatni. Aðsókn að námsskeiðunum hefir verið talsverð af ung-
lingum og fullorðnum, og svo stendur til að hafa í sumar námskeið
fyrir börn á skólaaldri.
Flateyrar. Veturinn 1930—1931 var Viggó Natanaelsson iþróttakenn-
ari fenginn hingað og að Suðureyri til að kenna íþróttir, aðallega leik-
fimi. Studdum við Örnólfur kaupmaður Valdimarsson þessa við-
leitni með því að taka að okkur kostnaðinn við dvöl íþróttakennarans,
hvor á sínum stað.
Hóls. Hér starfar fjölmennt ungmennafélag (120—130 meðl.); æfir
það glímur á hverjum vetri og knattspyrnu á sumrin. Félagið hefir
um margra ára skeið unnið að sundlaugarbyggingu í þorpinu, en mjög
verið afskipt um styrk úr ríkissjóði, hvað sem því veldur. Nú hefir fé-
lagið þó af eigin rammleik komið sér upp vandaðri, steinsteyptri laug,
sem hituð verður með miðstöðvarleiðslum í sumar.
Hestcyrar. Íþróttalíf er hér ekkert. Skólabörnum þó kennd leikfimi
innanhúss.
Hólmavíkur. Sund er iðkað í 2 heitum sundlaugum við Steingríms-
fjörðinn og í Bjarnarfirði, og leikfimisnámskeið var haldið á Hólma-
vík.
Suarfdæla. Sundkennsla fór fram við sundskálann í Svarfaðardal
eins og að undanförnu. Voru haldin 2—3 vikna námskeið, og voru þau
vel sótt, meðal annars af allmörgum utansveitarmönnum. Eitt nám-
skeiðið var eingöngu fyrir nemendur úr 5. bekk Menntaskólans á
Akureyri, er dvöldu hér við sundnám 3 vikna tíma ásamt íþrótta-
kennara menntaskólans, er kenndi þeim sundið. Leikfimisnámskeið
var haldið í Dalvík í marz og annað í nóvember. Lítið var um skíða- og
skautaferðir, enda aldrei að kalla skautasvell og sjaldan gott skíðafæri
síðari hluta vetrar í fyrra, og aldrei í vetur fyrir áramót.
Höfðahverfis. Ivnattspyrna stunduð sem áður. Eftir nýjár hafði ég
leikfimisæfingar með meðlimum knattspyrnufélaganna.
Húsavíkur. Ungir menn stunda talsvert íþróttir, fótbolta, hlaup,
stökk, sund o. fl. Við Uxahver í Reykjahverfi hefir verið hyggð sund-
laug, vel út húin. Fljótlegt að fylla hana og tæma, svo auðvelt er að
halda henni hreinni. Kalt steypibað í sambandi við hana. Enginn fær
að fara í laugina án þess að taka steypibað að loknu sundi. Sund
kennt að vetri og fram eftir sumri, bæði börnum og fullorðnum.
Þistilfj. íþróttir eru lítið stundaðar. Nokkrir ungir menn hafa lært
sund í skólum undanfarin ár, en mér virðist flestir leggja Iitla rækt
við það, þegar heim kemur.
Vopnafj. Iþróttir hafa verið iðkaðar með miklum áhuga í kauptún-
inu. Iþróttalelagið „Einherjar“ hefir allan næstliðinn vetur ha'dið
uppi kennslu í leikfimi, bæði fyrir karla og konur. Einnig hefir skóla-
börnum verið kennd leikfimi tvisvar í viku, og hefir öll leikfimikennsla
farið fram í ,,MikIagarði“, fundahúsi hreppsins. Árið 1929 var byggð
hér sundlaug norður við Selá, en þar er í bakkanum dálítil volg upp-
spretta. Unginennafélagið ,,Vopni“ stóð fyrir þessari sundlaugar-
7