Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Blaðsíða 69
67
Af barnsförum og úr barnsfararsótt hafa dáið undanfarin ár:
1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931
Af barnsförum 5 5 3 44 8 7104 6
Úr barnsfararsótt 563 6133 153
Samtals 10 11 6 10 5 11 10 11 9 9
Orsakir barnsfarardauðans eru í ár: Blóðlát 4, utanlegsþykkt 1 og
barnsfararkrampi 1.
Af alvarlegum fæðingarerfiðleikum voru þessar hinar helztu á ár-
inu samkv. skýrslum lækna og upplvsingum frá fræðingadeild Land-
spítalans um fæðingaraðgerðir: Piacenta accreta eða a. m. k. alvar-
lega föst fylgja 10, grindarþrengsli eða skökk grind 16, fyrirsæt fylgja
7, þverlega eða skálega 8, fæðingarkrampar 8, framfallinn lækur 2,
blæðingar 6, spangargagnrifur 3, vatnshaus 1.
Árskýrslur yfirsetukvenna geta nú fleiri fósturláta en áður eða alls
85 (í fyrra 9), en þau eru þó enn mjög vantalin. Eins og í síðustu skýrsl-
um hefir verið tekin saman tafla yfir curettage á öllum sjúkrahús-
unum á árinu samkv. aðgerðarskrám (bls. 68). Gef'ur hún nokkrar
upplýsingar um fósturlátin. Abortus provocatus fleygir mjög fram
með hverju ári, og er vel að verið, þegar fóstureyðingarnar verða meira
en helmingi fleiri en fósturlátin eins og á einu sjúkrahúsinu, en á öllum
sjúkrahúsunum samanlagt má heita jafnt af hvorutveggja (92 fóstur-
eyðingar, 97 fósturlát). Mun slíkt hlutfall óvíða þekkjast utan Rúss-
lands. Þó er mjög grunsamlegt, að í öðrum liðum töflunnar dyljist enn
meira af fóstureyðingum og jafnvel svo verulegu nemi. Nálgast sum
sjúkrahúsin það, að mega heita curettage-klínikur ef ekki hreinar abort-
klínikur. Standa Iæknar hér á hálu svelli með lögin yfir höfðinu
eins og þau eru. Tilefni fóstureyðinganna eru greind samkv. skýrslum
sjúkrahúsanna, og skortir ekki á, að frjálslega sé á haldið.
Um fæðingarhjálp sína láta læknar þessa getið:
Skipaskaga. Okkar læknanna hefir verið vitjað 34 sinnum á árinu
til sængurkvenna. 18 sinnum höfum við deyft við eðlilegar fæðingar,
13 sinnum höfum við hert á sóttum með pituitrini, tvisvar tekið börn
með töngum.
Borgarfj. Mín var vitjað 9 sinnum til sængurkvenna. Gengu þær
fæðingar allar slysalaust. Ein var tangarfæðing.
Ólafsvíkur. Á þessu ári var læknis vitjað 15 sinnum til sængur-
kvenna. í 9 af þessum tilfellum var aðeins um deyfingu að ræða við
reglulegar fæðingar. Hjá 2 konum var losuð föst fylgja. Aðeins einu-
sinni töng.
Dala. Fer í vöxt, að konur vilji fá deyfingu meðan á fæðingu
stendur, og hefir þess ekki verið synjað, þó um værrað ræða eðlilegar
fæðingar. Aðeins eitt fósturlát. Eitt tilfelli kom fyrir af eclampsia in
graviditate, gift kona, IV-para, á 8. mánuði. Þegar ég kom til konunn-
ar, hafði hún legið um 6 klst. í coma og þá búin að fá 15 krampaköst.
Hafði undanfarið haft mikinn höfuðverk, bjúg á fótum, í andliti og á
höndum, svo að saga varð af henni hring. Lækni eða ljósmóður hafði
ekkert verið gert aðvart. Konan hafði fengið snert af fæðingarkrampa
í 1. fæðingu, en ekki borið á því í seinni fæðingum. Ekkert legvatn