Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Blaðsíða 17
15
frábrugðin þeirri, er gekk fyrri hluta ársins, að hiti var nvi oftast
hár, um og yfir 40°, en stóð vanalega stutt, ef lungnabólga slóst ekki
inn í. Hélt þessi faraldur áfram fram yfir áramót.
Akureyrar. Kvefsótt var með meira móti. Oft orkaði tvímælis, hvort
væri kvef eða inflúensa.
Höfðahverfis. Gekk fyrri hluta ársins; úr því bar varla á henni.
Reykdæla. Kvefið meinlaust í ár.
Húsavikur. Síðastliðið ár frekar kveflítið. Yfirleitt hafa kveföldur
verið vægar, en í apríl var sérlega þrálátur hósti með kvefinu og
mjög seigur uppgangur. Ekki held ég þó, að sá faraldur hafi verið
annað en kvef, því að þótt sjúklingarnir kæmu hingað frá Reykjavík
í marz með inflúensu, þá sýktu þeir ekki frá sér; voru allir vel einangr-
aðir og' inflúensa barst hingað norðan úr Öxarfjarðarhéraði í maí.
Öxarfj. Enginn samfelldur kveffaraldur gekk yfir allt héraðið, en
víða var vont kvef um haustið, og hægfara, vondur kveffaraldur gekk
allt til ársloka. Lágu margir nokkra daga og fengu háan hita, eink-
um fullorðnir. Hefði mátt segja, að það hefði verið inflúensan aftur-
gengin í vægari mynd.
Vopnafj. Gerði lítið eitt vart við sig síðari hluta ársins.
Fáskrúðsfj. Alltíð þetta ár. Um helmingur sjúklinganna var börn
fyrir innan 15 ára aldur, og var veikin þyngst á þeim. Kvefinu fylgdi
allhár hiti, 39—40°, og voru margir lengi að ná sér aftur.
Síðu. I júní barst kvefsótt inn í héraðið eins og oft vill verða um
þær mundir, sem fólk er að koma úr vetrarvist í Reykjavik, Vest-
mannaeyjum og víðar. Var svo slæðingur af kvefi fram í júlí. Um hey-
annirnar varð hlé á kvefi, eins og oft er, en í sept. gerði það aftur
vart við sig. Svo var hið venjulega haustkef í okt.—nóv.
Mýrdals. Tvo fyrstu mánuði ársins gekk allþung kvefsótt; annars
var óvenjulítið um kvef.
Vestmannaeyja. í ársbyrjun var hér bronch. ac. í héraðinu; bar mest
á henni í janúar, febr. og marz; einnig síðar á árinu í október og
nóvember. Fór frekar hægt yfir í ársbyrjun.
Rangár. Ivvefsótt samfara meiri og minni liitasótt gekk hér í hér-
aðinu alla mánuði ársins, en eins og venjulega gengur kvefið sem
faraldur hér fyrri part ársins (janúar—júní), og fá sumir það upp
aftur og aftur. Kvefpest þessi var allslæm á köflum, og fengu þó
nokkrir lungnabólgu upp úr henni.
Grímsnes. Tracheo-bronchitis var annað slagið á ferð eins og vant
er. Skólafólkið er þar einkum næmt fyrir; hefir það viljað við brenna,
einkum við Laugarvatnsskóla. Utan skólanna ekki borið mikið á því
eða ekki verið útbreitt. í nóvember kom vont kvef á stórt barna-
heimili; veiktust öll börnin og lágu lengi með sótthita; nokkru síð-
ar barst kvefið þaðan á næsta bæ, einnig stórt barnaheimili og fór
á sömu leið. Slapp vel að lokum, og virtist eklcert hafa borizt frá þess-
um heimilum.