Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Blaðsíða 68
66
Á töflum XIV og XV sést aðsóknin að sjúkrahúsunum á árinu1).
Eru legudagarnir nokkru fleiri en á síðasta ári 319950 (279959) en
hvergi nærri því, sem búast hefði mátt við vegna tilkomu Landspítal-
ans, sem vitanlega bætti úr mikilli spítalaþörf. Auk þess er framtalið
nákvæmara nú en á fyrra ári og undanfarið, svo að verulegu nemur,
og munar mest um, að nú er talið Hressingarhælið í Kópavogi með
hátt á 9. þús. legudaga, en hefir áður fallið undan. Mun raunar eftir-
spurn eftir sjúkrahúsvist hafa verið töluvert minni þetta ár en tvö síð-
ustu árin. 2,9 sjúkrahúslegudagar koma á hvern mann í landinu, á al-
mennu sjúkrahúsunum 1,5 legudagar og heilsuhælunum (Vífilsstöðum,
Kópavogi, Reykjum og Kristnesi) 0,84 legudagar.
Sjúkdómar þeirra sjúklinga, sem lágu á hinum almennu sjúkrahús-
um á árinu, flokkast þannig (tölur síðasta árs í svigum):
Farsóttir ..................... 6,8% ( 4,9%)
Kynsjúkdómar ................. 1,0— ( 1,0—)
Berklaveiki .................. 16,3—- (18,2—)
Sullaveiki ................... 0,5— ( 0,7—)
Krabbamein og illkynjuð æxli . . 2,7—- ( 3,4—)
Fæðingar, fósturlát o. þ. h...12,2— ( 5,1—)
Slys ......................... 6,4— ( 8,6—)
Aðrir sjúkdómar .............. 54,1—• (58,1—)
IV. Barnsfarir.
Töflur X.—XI.
Á árinu fæddust samkv. tölum Hagstofunnar 2794 lifandi og 62 and-
vana börn.
Skýrslur ljósmæðra geta 2532 fæðinga: 2538 barna og 35 fósturláta.
Getið er aðburð 2520 barna, og var hann í hundraðstölum sem
hér segir:
Höfuð bar að:
Hvirfil 94,72%
Framhöfuð 1,23—
Andlit 0,40— 96,35%
Sitjanda og fætur bar að: Sitjandi Fótur 2,42— 0,56— 2,98—
Þverlega 0,67—
62 af þessum 2538 börnum komu andvana, þ. e. 2,4%, í Rvík 16 af
820 (2,0%). Hálfdauð voru við fæðinguna 43 (1,7%) og ófullburða 88
(3,5%). 4 börn eru talin vansköpuð, þ. e. 1,6%0.
1) Enn vantar i þetta yfirlit skýrslu um einkasjúkraskýli héraðslæknanna >
Vestmannaeyjum og á Hofsós.