Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Blaðsíða 87
85
Sjúkrasamlag Reykjavíkur .......................... með 4187 meðl.
— prentara Rvík ........................ — 148 —
Hafnarfjarðar ....................... — 365 —
— Akraness ............................. — 215 —
Sauðárkróks ......................... — 119 —
Siglufjarðar ........................ — 125 —
— Akureyrar ............................ — 135 —
Seyðisfjarðar ....................... — 125 —
Fljótshlíðar ........................ — 54 —
Samtals með 5473 meðl.
Er meðlimatalan þannig um 5% af íbúatölu landsins (á fyrra ári
4,5%). Viðbótin hefir aðallega átt sér stað í Reykjavík og Hafnarfirði,
annarsstaðar hefir meðlimatalan ekki aukizt sem neinu nemur eða
staðið í stað og jafnvel minnkað (Akureyri).
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Sjúkrasamlagið hefir átt örðugt uppdráttar á þessu ári.
Stafar það bæði frá krepputímum þeim, sem nú ganga yfir, svo félags-
menn hafa ekki getað staðið i skilum með mánaðartillög sín, sem
hækkuð vou lir 1 kr. upp í 2 kr. á mánuði, svo og frá kostnaði við
sjúkrahúsvistir samlagsmanna. Útistandandi skuldir félagsins voru
sem næst 242 kr. um áramótin; hefir félagið tjáð mér, að þegar þeim
væri náð inn, yrði tekjuhallinn þó ca. 8 kr.
Komið hefir til tals, að Innri-Akraneshreppur gangi í samlagið, en
það mál er ekki útkljáð þegar þetta er ritað. Verði það úr, bætist sam-
laginu góður liðsauki.
Hjúkrunarfélagið hjarir ennþá, þótt meðlimum hafi ekkert fjölgað;
þeir eru sem stendur 105. Kvenfélag Akranes tók að sér innheimtu á
árstillögum, og gekk óvenju vel að ná þeim inn. Sjóður félagsins var
við árslok kr. 940,24. Tekjur þess eru, auk árstillaga, dánarminningar-
gjafir og gjafir einstakra manna.
Borgarfj. Ein ólærð hjúkrunarkona í Reykholtsdalshreppi, á vegum
kvenfélags Reykdæla.
ólafsvíkur. Um hjúkrunarstarfsemi í héraðinu hefir eiginlega ekki
verið að ræða nema á Hellissandi, þar sem kvenfélagið hefir gengizt
fyrir því að ráða fasta hjúkrunarkonu til aðstoðar i veikindum. í ráði,
að samskonar starfsemi verði hafin í Ólafsvík, og hefir þegar verið
stofnað til félagsslcapar og samskota í því skyni. Slík starfsemi er afar
nauðsynleg og þyrfti að eiga sér stað í hverju einasta hreppsfélagi.
Flateyrar. Eins og' að undanförnu hefi ég haft lyfjabirgðir í Súg-
andafirði í vörzlum frú Sigríðar H. Jóhannesdóttur. Það er dýrt, erfitt
og oft ófært að ná í lækni til Súgandafjarðar, en þar sem fólkið er orð-
ið þar hálft fimmta hundrað að tölu og sjósókn þaðan mikil, er að von-
um, að sjaldan sé amalaust í plássi þessu. Það helir því komið sér æði
vel, að áðurnefnd frú Sigríður, sem ber með afbrigðum gott skyn á
sjúkdóma og hjúkrun, hefir gerzt nokkurskonar sjálfboðaliði undan-
farin ár í því að leiðbeina fólki í veikindatilfellum. Þegar margir hafa
verið veikir, hefir hún gengið til þeirra, athugað þá og talað svo við