Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Blaðsíða 61
59
7. Drykkjuæði (delirium tremens).
Töflur V—VI.
Sjúklingafiöldi 1929—1931:
1929 1930 1931
SjÚkl............................................ 4 4
A árinu er enginn skráður með delirium tremens. Á einu sjúkra-
húsinu (Sólheimum, Rvík) er þó getið um 2 sjúklinga.
Læknar láta þessa getið:
Húsavíkur. Hérlendis hefi ég aldrei séð delirium tremens.
Af næmum sóttum, sem ekki eru sérstakir dálkar fyrir á mánaðar-
skrám og til þessa kafla mættu teljast, geta læknar þessara:
Actinomycosis. Héraðslæknirinn á Húsavík telur sig hafa séð sjúk-
dóminn í sauðfé.
Anthrax. Miltisbrandur kom upp i nautgripum í Þistilfjarðarhéraði
i grennd við Þórshöfn.
Favus. ísafj. 1, Reyðarfj. 1, Rangár. 1, Einn sjúklingur var til lækn-
inga á Röntgenstofu Háskólans.
Granuloma er alltíður kvilli í sláturtíðinni á haustin, og er hans getið
í þessum héruðum: Borgarfj. 7, Miðfj. 6, Hofsós. 2, Húsavíkur 7,
Vopnafj. 3, Reyðarfj. 3.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfi. G e i t u r sjást hér aldrei.
Borgarfi. 7 sjúklingar skráðir með granuloma. Áður hefi ég
ekki séð þennan kvilla í héraðinu, og mun hann vera óþekktur hér
um slóðir. Allir höfðu sjúklingarnir verið í slátri skömmu áður en
þeir urðu hans varir. Batnaði við ung. pyrogalloli compos.
Miðfi. í sláturtíðinni kom upp lítið faraldur af infektiösum
g r a n u 1 a t i o n s s júkdómi. Hann kom á hendur, oftast fingur,
og byrjaði sem þykkni í húðinni, er líktist vörtu, sem svo smástækk-
aði (það stærsta sem ég sá var á stærð við rúsínu), eða það myndað-
ist í sári eða skeinu og líktist þá ofholdi. Þegar granulomið myndaðist
að því er virtist í heilli húð, líktist það eins og fyrr er getið, vörtu;
yztu lög húðarinnar voru þykknuð, en undir þessu þykkni var hinn
eiginlegi granulationsvefur. Vessi var á milli þykknisins og granu-
lationsvefsins, sem oftast var seropurulent, stundum blóðblandinn.
Oftast fylgdi þessu lymphangitis og nokkur verkur. Sjúkdómurinn
læknaðist tiltölulega fljótt, ef þykknið var klippt ofan af og granula-
tionsvefurinn brenndur með lapis. 6 sjúklingar leituðu læknis með þenn-
an kvilla og voru frá 2—11 daga að læknast eftir því hvað granulomið
var stórt. Sennilegast þykir mér, að einhver svepptegund sé orsökin
að þessum sjúkdómi, þó að ég hafi ekki fundið annað en cocca í præ-
parötum, sem ég tók til smásjárrannsóknar, og sömuleiðis í gróðri
frá útsæði í glyserinbouillon.
Hofsós. í sláturtíðinni komu fyrir 2 granuloma, en þau koma
sjaldan fyrir á öðrum tíma.
Húsavíkur. Á árinu fékk ég til meðferðar 7 tilfelli af g r a n u 1 o m,
og er það minna en 2 síðustu árin. Eins og ég hefi áður tekið fram,