Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Side 64
62
jöfnum höndum á hinum gömlu og nýju eyðublöðum, og því verður
ekkert heildaryfirlit gert.
í 4 héruðum hefir verið gerð Pirquetrannsókn á skólabörnum sbr.
töflu IX, og hefir verið minnst á það áður.
Hafnarfj. Algengustu kvillar eru tannskemmdir, kirtlabólga, hrvgg-
skekkja og blóðleysi.
Ólafsvíkur. Algengustu kvillar skólabarna hafa verið tannskemdir,
eitlabólga og óþrif í höfði, sérstaklega nit. Þau óþrif fara þó minnk-
andi. Berklaveiki í skólabörnum varð lítið vart. Langalmennastir
kvillar í skólabörnum eru tannskemmdir. Má segja-, að það sé undan-
tekning, að barn á skólaaldri hafi óskemmdar tennur.
Dala. Hypertroph. tonsill. 9, eitlaþroti 9, blepharoconjunctivit. 5,
táskekkjur 1, hryggskekkja 1. Samanborið við skýrslur úr öðrum
héruðum, virðist hvergi eins mikið um tannskemmdir og hér, a. m. k.
ekki i sveitum, hvað sem því kann að valda. Býst ekki við, að meira
sé um sykur- og brauðát hér en í öðrum héruðum, eða yfirleitt meiri
nýmenningarbragur á matarræði en gengur og gerist í sveitum, nema
síður sé.
Flatei/jar. 1 barn hafði vestigia rachitidis og 1 barn meðfæddan
sjóngalla.
Hóls. Af 83 börnum höfðu tannskemmdir 75, sjóngalla 15, heyrn-
ardeyfu 1, eitlaþrota 42, kokeitlaauka 12, skakkbak 11, lús eða nit 14.
Hólmavíkur. Heilsufar skólabarna var yfirleitt gott. Mest ber á
tannskemmdum, sem varla nokkurt barn er laust við. Óþrif — lús og
nit — fer minnkandi.
Miðff. Af 147 börnum á skólaskyldualdri voru 95% með tann-
skemmdir, á 82% fannst fyrir kirtlum á hálsi, 9,5% voru með eitla-
þrota, 21% með stækkaða kokeitla og 9,5% með munnöndun. Veilu
í lungum höfðu 4 börn, rhinitis 3, impetigo 1, lichen strouphulus 1,
parulis 1, epilepsi 1, anæmia 3, skakkbak 3, magakvilla 2, taugaveikl-
un 1, heyrnardeyfu 1. Ennfremur rannsakaði ég d’Espine symptom á
140 börnum. Af þeim voru
3 með bronchial öndun niður á
20 — — — — -
35 — — — -
34 — — — — -
22 — — — — -
18 — — — — -
V. cervical-lið
VII.
I. thoracal-lið
II. --
III.
IV.
V.
VI. —
Einn héraðsskóli er í umdæminu, Reykjaskóli, og skoðaði ég þar 33
unglinga; þar af voru 96% með tannskemmdir, 6% með eitlaþrota, á
52% fannst fyrir kirtlum á hálsi, 9% höfðu kokeitlaauka og 3% voru
með munnöndun; 1 var veill í lungum og 2 voru með bronchitis acuta.
Sauðárkróks. Af 205 skólabörnum höfðu 6 sjóngalla, heyrnardeyfu 2,
tannskemmdir 110, eitlaþrota 15, eitlaauka 49, kokeitlaauka 35,
skakkbak 7, lús og nit 21.
Hofsós. Hjá skólabörnum (134) hefir meðal annars orðið vart þess-